is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/8879

Titill: 
  • Dressmann : áhrif efnahagskreppunnar og atvinnuvegagreining.
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Markmið þessa verkefnis er að kanna hvaða áhrif efnahagskreppan hefur haft á starfsemi og rekstur fataverslunarinnar Dressmann á Íslandi sem og á kauphegðun viðskiptavina. Einnig að kanna hvernig samkeppninni er háttað á herrafatamarkaðnum á Akureyri og greina hvort auðvelt sé fyrir ný fyrirtæki að koma inn á markaðinn.
    Í verkefninu var sagt frá upphafi og þróun efnahagskreppunnar og unnin var samkeppnis- og atvinnuvegagreining. Fengin voru rekstrargögn frá Dressmann til þess að kanna áhrifin sem efnahagskreppan hefur haft á rekstur fyrirtækisins hér á landi. Tekin voru hálfstöðluð viðtöl við þrjá verslunarrekendur á Akureyri og voru svör þeirra og viðhorf notuð til þess að vinna samkeppnis- og atvinnuvegagreiningu á herrafatamarkaðnum á Akureyri. Til þess að geta greint breytingar á kauphegðun viðskiptavina Dressmann var lögð spurningakönnun meðal viðskiptavina.
    Helstu niðurstöður samkeppnis- og atvinnuvegagreiningarinnar eru þær að samkeppnisbaráttan milli herrafataverslana á Akureyri er ekki mikil. Flestar verslanir eru meðvitaðar um herferðir samkeppnisaðilanna en bregðast ekki við þeim á neinn ákveðinn hátt. Eftirspurnin á markaðnum er mikil og fáar innkomuhindranir fyrir nýjar verslanir.
    Viðskiptavinir Dressmann leitast fyrst og fremst eftir ódýrum gæðavörum. Verð skiptir viðskiptavini Dressmann meira máli í dag en það gerði áður en efnahagskreppan skall á þrátt fyrir það þá hefur rúmlega helmingur viðskiptavina ekki dregið úr fatakaupum.
    Lykilorð: Efnahagskreppan, stefnumótun, Dressmann, fataverslanir og samkeppni

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er lokað
Samþykkt: 
  • 31.5.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/8879


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lokaritgerð final.pdf1.04 MBLokaðurHeildartextiPDF
Efnisyfirlit final.pdf118.29 kBLokaðurEfnisyfirlitPDF