Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/8915
Verkefnið inniheldur skráningu og lyklun á skýrslusafni Siglingastofnunar Íslands og greinum sem starfsmenn stofnunarinnar hafa skrifað. Skráin nær aðeins yfir þann hluta skýrslusafnsins sem unnin er af starfsmönnum stofnunarinnar og takmarkast við tímabilið 1980-2000. Tilgangurinn með skráningunni var að auðvelda aðgengi að því efni sem er að finna í skýrslusafninu og leggja grunn að efnislykli sem hægt væri að styðjast við við skráningu á því efni sem eftir er að skrá. Í upphafsköflum er stuttlega gert grein fyrir tilgangi verkefnisins og verklagi við gerð skráarinnar. Á eftir fylgir kafli um uppbyggingu þeirra skráa sem verkefnið inniheldur og leiðbeiningar um notkun þeirra. Allra heimilda sem notaðar voru við vinnslu verkefnisins er getið í heimildaskrá. Að endingu koma skrárnar sem eru fjórar talsins, aðalskrá og þrjár hjálparskrár; efnisorðaskrá, staðaskrá og höfundaskrá. Aðalskráin telur 220 bókfræðilegar færslur og er þeim raðað í stafrófsröð eftir titli. Hver færsla er númeruð svo að hægt sé að vísa til þeirra í hjálparskránum og einnig var hverri hverri færslu gefið efnisorð. Í efnisorðaskrá og staðaskrá eru gefin upp öll efnisorð sem notuð voru við lyklunina og í höfundaskrá er að finna alla höfunda, auk stofnana, sem skráðir eru.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Forsida.pdf | 117.79 kB | Opinn | Forsíða | Skoða/Opna | |
BA-verkefni.pdf | 397.37 kB | Opinn | Meginmál | Skoða/Opna |