Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/8946
„Samstarfsvettvangur fulltrúa stjórnmálaflokkanna um öryggi Íslands á breiðum grundvelli“ verður stofnaður af ríkisstjórninni í kjölfar brotthvarfs varnarliðsins. Allt frá því samkomulag náðist milli Íslands og Bandaríkjanna um varnarmál haustið 2006 virðist hafa gætt misskilnings í umfjöllun um málið, sem er í raun tvískipt. Annars vegar var í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar við framangreint samkomulag fjallað um samstarfsvettvang fulltrúa stjórnmálaflokkanna. Hins vegar hafa ýmsir aðilar blandað því saman við eigin umfjöllun um mögulega stofnun á sviði öryggis- og alþjóðamála. Í þessari ritsmíð verður greint þarna á milli og farið yfir hvorn flokk fyrir sig, kenningarlegir möguleikar rannsakaðir og raunveruleiki stjórnmálanna kortlagður.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
b.2006.2.2.4.pdf | 252.52 kB | Open | Heildartexti | View/Open |