is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/897

Titill: 
  • Móttökuferli og nýliðaþjálfun hjá Þórsberg ehf.
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Á tiltölulega stuttum tíma hefur íslenskt þjóðfélag tekið miklum breytingum. Frá því að vera tiltölulega einhæft bændasamfélag og fiskveiðiþjóð, yfir í nútímalegt samfélag. Þessar breytingar í gegnum árin hafa haft það í för með sér, að atvinnutækifæri landsmanna hafa aukist og orðið fjölbreyttari. Í kjölfar þess að atvinnutækifærunum hefur fjölgað, hefur myndast meiri hreyfanleiki á starfsfólki, og þar með hefur starfsaldur fólks innan fyrirtækja lækkað. Þar sem fyrirtæki vilja hafa sem minnsta starfsmannaveltu, leita þau allra leiða til svo verði. Á góðum stað stendur “í upphafi skyldi endinn skoða”. Það er góð ábending þegar verið er að ráða nýtt starfsfólk. Nauðsynlegt er að taka vel á móti nýju starfsfólki, til að því finnist það, frá fyrsta degi, vera velkomið til fyrirtækisins. Einnig þarf nýliðaþjálfunin að vera sterk, þannig að hinn nýráðni starfsmaður fái sem fyrst innsýn í störf sín og hætta á mistökum verði minni en annars.
    Verkefni þetta sem unnið var í samvinnu við Þórsberg ehf. á Tálknafirði miðaði að því að athuga hvort erlendum starfsmönnum fyrirtækisins fyndist að vel hefði verið tekið á móti þeim, og hvernig nýliðaþjálfunin hefði tekist til. Að fyrirtækið geti þannig fundið út, hvort þessi tvö atriði væru að skila sér rétt til nýrra erlendra starfsmanna.
    Lykilorð:
    Starfsmannaráðningar – móttaka – þjálfun.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri
Samþykkt: 
  • 1.1.2006
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/897


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
thorsberg.pdf252.55 kBTakmarkaðurMóttökuferli og nýliðaþjálfun hjá Þórsberg ehf. - heildPDF
thorsberg_e.pdf93.37 kBOpinnMóttökuferli og nýliðaþjálfun hjá Þórsberg ehf. - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
thorsberg_h.pdf123.2 kBOpinnMóttökuferli og nýliðaþjálfun hjá Þórsberg ehf. - heimildaskráPDFSkoða/Opna
thorsberg_u.pdf96.29 kBOpinnMóttökuferli og nýliðaþjálfun hjá Þórsberg ehf. - útdrátturPDFSkoða/Opna