Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/898
Verkefni þetta er lokaverkefni til B.Sc. gráðu í Viðskiptadeild Háskólanns á
Akureyri, unnið í samstarfi við Össur. Tilgangur verkefnisins var: að greina
innflutningsferla og innflutningsreglur í fjórum löndum Suður Ameriku; Chile,
Ecuador, Peru og Venezuela og komast að því hvort að þar séu fýsilegir kostir
fyrir Össur. Rannsókninni var skipt í tvennt, fyrst voru innflutningslög og
innflutningsferla í hverju landi fyrir sig skoðuð, og síðan var farið í samanburðar
greiningu á þessum fjórum mörkuðum.
Eftirfarandi spurningar voru einnig sett fram við upphaf rannsóknarinnar:
Hvaða áhrif getur ytri umhverfi þessara landa haft á áhuga fyrirtækja?Hvaða
viðskiptasamningar eru til í þessum löndum, og hvaða áhrif gæt þeiri haft á
innflutning Össurar? Hvaða innflutningslög og ferlum eiga við í hverju landi
fyrir vörur Össurar? Hvaða tvö lönd koma helst til greina sem innflutningslönd?
Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar eru engar takmarkanir fyrir innflutningi
framleiðsluvara Össurar til þessara landa. Suður Amerika er áhugaverður
markaður, þrátt fyrir ytri þætti, svo sem pólitískan óstöðuleika og frekar miklar
sveiflur í efnahagsmálum. Höfundurinn telur að ástandið í Ecuador, Peru og
Venezuela, geti haft neikvæð áhrif á áhuga Össurar til að starfa þar, og telur að
þeir ættu að endurskoða ástand markaðanna áður en hugað er að markaðsstarfi
þar. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar, þar sem stuðst var við
samanburðar-greiningu, eru Chile og Venezuela vænlegustu markaðirnir af þeim
löndum sem skoðuð voru. Chile var í efsta sæti vegna heilbrigðs efnahags,
núverandi innflutningi af þessum vörum, og hátt hlutfalls vergrar landsframleiðslu
(GDP) sem eytt er í heilbrigðismál. Venezuela lenti í öðru sæti þrátt fyrir mikinn
óstöðugleika bæði í pólitískummálum og efnahagsmálum. Núverandi
innflutningur af svipuðum vörum, og hlutfallslega mikil eyðsla í
heilbrigðismálum gerðu landið áhugavert. Peru og Ecuador lentu í þriðja og fjórða
sæti, þar sem núverandi lítill innflutningur af svipuðum vörum, og lágt hlutfall
vergrar landsframleiðslu sem eytt er í heilbrigðiskerfi, er mun lægra en það sem
eytt er í Chile eða í Venezuela. Höfundurinn leggur til að þessir þættir verði
skoðaðir mun betur, áður en endanlegt ákvörðum um frekara markaðsstarf á sér
stað, þar sem upplýsingarnar sem stuðst var við, eru í eðli sínu síbreytilegar.
Lykillorð: Innflutningur, Tollar, Viðskipti, Suður Amerika, Össur.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
analysisofmarket.pdf | 1,03 MB | Takmarkaður | Analysis of markets and import procedures in Chile, Ecuador, Peru and Venezuela - heild | ||
analysisofmarket_e.pdf | 219,49 kB | Opinn | Analysis of markets and import procedures in Chile, Ecuador, Peru and Venezuela - efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
analysisofmarket_h.pdf | 184,06 kB | Opinn | Analysis of markets and import procedures in Chile, Ecuador, Peru and Venezuela - heimildaskrá | Skoða/Opna | |
analysisofmarket_u.pdf | 190,46 kB | Opinn | Analysis of markets and import procedures in Chile, Ecuador, Peru and Venezuela - útdráttur | Skoða/Opna |