en English is Íslenska

Thesis (Bachelor's)

Iceland University of the Arts > Myndlistardeild / Department of Fine art > Lokaritgerðir / Theses (BA) >

Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/9010

Title: 
  • Title is in Icelandic Vegasalt
Degree: 
  • Bachelor's
Abstract: 
  • Abstract is in Icelandic

    Þessi ritgerð byggir á reynslu höfundar sem nemanda og upplifun hans á myndlistarnámi við Listaháskóla Íslands. Bakgrunnur nemanda er skoðaður og það hvernig hann hefur haft áhrif á skólagönguna. Það er leitast við að gera grein fyrir muninum á handverki annarsvegar og myndlist hinsvegar. Höfundur leitar svara við því hvort þessir tveir heimar eigi samleið með einhverju móti, um leið og hann vegur og metur eigin vinnu síðustu ára. Kenningar um myndun tungumáls eru bornar saman við lærdóm á tæknilegum vinnubrögðum. Mikilvægi þess lærdóms er skoðað og vald yfir efni og eigin athöfnum sett í samhengi við listsköpun. Einnig er metið hvað gaf góða raun í kennsluháttum við Listaháskólann og hvað hefði mátt betur fara. Spurningar um hið persónulega og hið almenna eru bornar upp og skoðað hvernig hið persónulega getur orðið að því almenna. Þá er hugað að mikilvægi þess að sátt ríki um það sem er og það sem var til þess að eitthvað annað geti orðið. Að lokum er vinnuferli listsköpunar gert skil og gerir nemandi það upp hvaða þættir í ferlinu gagnast niðurstöðunni og hverjir ekki. Ritgerðin er samantekt nemanda á sjálfum sér og því sem viðkemur listsköpun hans.

Accepted: 
  • Jun 7, 2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/9010


Files in This Item:
Filename Size VisibilityDescriptionFormat 
Lokaritgerd.pdf1.35 MBLockedHeildartextiPDF