Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/9042
Ófáar bækur og bíómyndir hafa verið gerðar um síðari heimstyrjöldina. Flestar hafa fjallað um hlut bandamanna í styrjöldinni og hvernig þeim tókst að þrauka í gegnum árásir Þjóðverja, snúa taflinu sér í vil og ná að endingu fram „glæstum“ sigri. Þegar hann var í höfn var réttað yfir óþokkunum og flestir
fengu þeir makleg málagjöld. Fall Berlínar 1945 eftir sagnfræðinginn Anthony Beevor fjallar aftur á móti um allt annan raunveruleika, þ.e. um styrjöldina á austurvígstöðvunum, en þar bárust Þjóðverjar og Sovétmenn á banaspjótum. Án þess að lítið sé gert úr þjáningum þeirra sem tóku þátt í styrjöldinni eða voru fórnarlömb hennar á vesturvígstöðvunum voru átökin hvað grimmilegust á austurvígstöðvunum og mannfallið mest, bæði meðal óbreyttra borgara eða hermanna.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
c.2006.2.2.6.pdf | 26.34 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |