is Íslenska en English

Grein

Háskóli Íslands > Rafræn tímarit > Stjórnmál og stjórnsýsla >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/9068

Titill: 
  • Samfélagsleg áhrif verkalýðshreyfingarinnar á 20. öld - framtíðarsýn á 21. öldinni
Útgáfa: 
  • Júní 2007
Útdráttur: 
  • Tuttugasta öldin var merkileg um margt, sérstaklega fyrir einkennilega blöndu framfara, bætts mannlífs og ótrúlegrar mannvonsku. Frægustu dæmin um mannvonskuna eru heimsstyrjaldirnar tvær, stjórnmálastefnurnar kommúnismi og nasismi og stjórnmálamennirnir Hitler og Stalín. Fleira mætti nefna til að sýna fram á að myndin er ekki svart-hvít. Þekktustu dæmin um framfarirnar eru vísindin, kenningar Einsteins í eðlisfræði, uppgötvun erfðaefnisins og framfarir í læknisfræði. En það er einnig sérstök ástæða til að nefna framfarir í hagfræði og stjórnvísindum og raunar víða í félagsvísindum því að sú grein gleymist gjarnan þegar hugsað er um vísindi: Við skiljum sum samfélagsfyrirbrigði betur nú en fyrir hundrað árum. Gífurlegar tæknilegar framfarir urðu á tuttugustu öldinni og fjöldamörg samfélög heimsins urðu auðug og gerðu venjulegu fólki auðveldara að lifa af; raunar ekki einvörðungu að lifa af heldur að lifa lífi sem það gat stjórnað og var fjölbreyttara og ánægjulegra en líf forfeðra þeirra.

Birtist í: 
  • Stjórnmál og stjórnsýsla, 3 (1) 2007
ISSN: 
  • 16706803
Athugasemdir: 
  • Bókardómur
Samþykkt: 
  • 8.6.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/9068


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
c.2007.3.1.2.pdf22.18 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna