is Íslenska en English

Grein

Háskóli Íslands > Rafræn tímarit > Stjórnmál og stjórnsýsla >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/9090

Titill: 
  • Afríka sunnan Sahara. Í brennidepli
Útgáfa: 
  • Desember 2007
Útdráttur: 
  • Ánægjulegt hefur verið að fylgjast með því hvernig áhugi Íslendinga á málefnum þróunarlanda virðist hafa aukist á undanförnum árum. Fjölmiðlar hafa og tekið við sér; algengt er að fjallað sé um hin fátækari ríki heims á síðum dagblaða og í ljósvakamiðlum. Þróunarmál eru í deiglunni.
    Yfirbragð þeirra upplýsinga sem við höfum fengið hefur þó ekki breyst alveg í takti við aukið magn þeirra: Enn ber sú mynd sem dregin er upp af mannlífi í Afríku sunnan Sahara einkum keim af allsleysi og örbirgð, örvinglun og kröm. Enn er okkur innrætt sú hugmynd að í Afríku búi einsleitt fólk án menningarsérkenna og okkur er lítt veitt innsýn í sérkenni mismunandi ríkja í álfunni og ótölulegra þjóðflokka, ríkrar flóru tungumála og nýtingu margbreytilegs náttúrufars. Of oft virðist okkur ætlað að fella þann tæpa milljarð manna sem álfuna byggir undir hatt almennrar staðalmyndar af „Afríku“.

Birtist í: 
  • Stjórnmál og stjórnsýsla, 3 (2) 2007
ISSN: 
  • 16706803
Athugasemdir: 
  • Bókardómar
Samþykkt: 
  • 8.6.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/9090


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
c.2007.3.2.7.pdf20,21 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna