Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/9093
Verkefnið fólst í smíði vefhlutar fyrir Íslandspóst, sem á að þjóna öllum einstaklingum og lögaðilum á Íslandi. Lausnin ber nafnið Hverfð og er séreining innan stærri veflausnar sem Íslandspóstur hefur haft í smíðum um nokkurt skeið. Hverfið veitir einstaklingum gagnvirka kortaþjónustu þar sem nálgast má upplýsingar um þitt hverfi.
Markmiðið var að gera Hverfið einfalt í notkun þannig að allar aðgerðir tækju sem stystan tíma og jafnfram hafa kerfið notendavænt þannig að notandanum líði vel inn á vefnum. Eins var mikil áhersla lögð á að samþætting vefhlutans við núverandi kerfi Íslandspósts yrði einföld og markviss.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaskýrsla.pdf | 1.23 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |