Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9100
Stærstu baráttumál sem Íslendingar hafa ætlað sér sigur í eru vafalítið baráttan fyrir sjálfstæði þjóðarinnar og útfærslur fiskveiðilögsögunnar sem byggðust á landgrunnslögunum frá 1948 og miðuðu að því að vernda fiskistofnana kringum landið. Þessi baráttumál voru af sama meiði og vel er orðað í sálmi Jóns Magnússonar, „Föðurland vort hálft er hafið“. Þau fleygu orð eru einkunnarorð Landhelgisgæslu Íslands og lýsa í sjálfu sér mikilvægi þess að vernda sjávarauðlindirnar kringum Ísland sem undirstöðu efnahagslífs á Íslandi alla síðustu öld og til framtíðar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
c.2007.3.2.13.pdf | 25.68 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |