Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/9110
Verkefnið fólst í því að smíða hugbúnað fyrir Friðrik Skúlason ehf., sem hjálpar kerfisstjóra að hafa yfirsýn yfir tölvur á neti innan fyrirtækis. Tilgangurinn með hugbúnaðinum er að veita kerfisstjóra mikilvægar upplýsingar um þær tölvur sem eru á neti innan fyrirtækis og hvort öll öryggismál séu í lagi. Hugbúnaðurinn hefur allar nýjustu upplýsingar hvað varðar vírusvörn notanda sem og alla þá sögu sem henni fylgir.
Markmið verkefnisins var að smíða notendavænan hugbúnað sem gæti birt þessi gögn á mjög aðgengilegan hátt. Það sem var einnig mjög mikilvægt, var að kerfisstjóri gæti haft sem besta yfirsýn yfir þær tölvur sem eru á hans neti og gæti flokkað tölvur eftir því sem honum hentar.
Hugbúnaðurinn er viðbót við vírusvörn Friðriks Skúlasonar ehf., F-Prot Antivirus.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaskýrsla.pdf | 986,65 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |