Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9228
Markmið þessa verkefnis er að móta afreksstefnu fyrir knattspyrnudeild Keflavíkur. Slík stefnumótun er leiðbeinandi fyrir knattspyrnudeildina um hvernig vinna megi að uppbyggingu og mótun afreksmanna í knattspyrnu. Verkefnið er tvíþætt, annarsvegar fræðileg umfjöllun um stefnumótun og þá þætti sem afreksmaður í knattspyrnu þarf að hafa og hins vegar mótun afreksstefnu fyrir knattspyrnudeild Keflavíkur. Til að styðja við verkefnið voru tekin eigindleg viðtöl með hálfopnum spurningum við yfirmenn hjá tveimur félagsliðum hér á landi sem vinna eftir mótaðri stefnu sem og yfirmanns akademíu hjá erlendu félagsliði. Markmiðið með þeim viðtölum var að fá innsýn í hugmyndafræði og stefnu félaganna. Einnig voru tekin viðtöl við reynslumikla þjálfara. Markmiðið með þeim spurningum var að fá fram hvaða þætti ætti helst að leggja áherslu á við þjálfun knattspyrnumanna. Við vonumst til að verkefnið geti nýst knattspyrnudeild Keflavíkur við mótun á afreksstefnu fyrir félagið. Með lestri á þessu verkefni getur félagið séð hvaða þætti í bæði stefnumótunarferli og starfi afreksstefnunnar félagið þarf að líta til. Með þetta verkefni að leiðarljósi ætti sú vinna að nýtast knattspyrnudeild Keflavíkur þegar hún mótar sína afreksstefnu.
Lykilorð: Afreksstefna, Afreksmaður, Knattspyrnufélag Keflavíkur, Knattspyrna, Stefnumótun, Þjálfun.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Mótun afreksstefnu fyrir Knd. Keflavíkur.pdf | 662.54 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |