Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/9295
Verkefni þetta er í formi handbókar og greinargerðar sem styður hana. Með verkefninu er leitast við að svara rannsóknarspurningunni: Hvernig er hægt að nýta barnabókmenntir í lífsleiknikennslu til að efla fagurþroska, félagsþroska og málþroska leikskólabarna?
Handbók og greinargerð nýtist starfsfólki leikskóla og öðrum sem vinna markvisst með ung börn á leikskólaaldri. Handbókin inniheldur verkefni með áherslu á lífsleikni og barnabækur sem nota má í leik og daglegu starfi með börnum og til að efla þá þroskaþætti sem unnið er með. Handbókin er því starfsfólki leiðarvísir og hvatning til að nýta barnabækur í starfi sínu. Greinargerðin gefur starfsfólki tækifæri á að dýpka skilning og innsæi sitt á alhliða þroska barna og viðfangsefnum tengt barnabókmenntum og lífsleikni.
Í greinargerðinni er sett fram efni um alhliða þroska barna og gildi barnabókmennta og lífsleikni í uppeldi og menntum þeirra. Eins er fjallað um hlutverk kennara í uppeldi og menntun barna og þeim þroskaþáttum sem valdir voru til að vinna með gerð skil. Verkefnin sem unnin eru í handbókinni fá umfjöllun í greinargerðinni og efni hennar rökstutt.
Í handbókinni eru settar fram hugmyndir að verkefnum sem ætlað er að efla þroska barna með því að vinna með barnabækur og lífsleikni. Höfundar völdu að vinna með þrjá þroskaþætti í handbókinni, þeir eru: Fagurþroski og sköpunarhæfni, félagsþroski og félagsvitund og málþroski. Markmiðið með verkefnunum í handbókinni er að efla þessa þroskaþætti þar sem þeir tengjast vel innbyrðis þeir tengjast enn fremur öðrum þroskaþáttum barna.
| Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| Efnisyfirlit - Greinargerð.pdf | 61,11 kB | Opinn | Efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
| Heimildaskrá - Greinargerð.pdf | 102,92 kB | Opinn | Heimildaskrá | Skoða/Opna | |
| Heildartexti - Greinargerð.pdf | 281,24 kB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna | |
| Fyrsti hluti - Handbók.pdf | 120,75 kB | Opinn | Fyrsti hluti handbókar | Skoða/Opna | |
| Heildartexti - Handbók.pdf | 729,23 kB | Opinn | Handbók | Skoða/Opna | |
| Heimildaskrá - Handbók.pdf | 61,61 kB | Opinn | Heimildaskrá | Skoða/Opna |