Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/9310
"Hann er fyrir aftan þig!" : bresk leiklistarhefð inn í íslenskt skólakerfi : greinargerð með handbók fyrir kennara
Að skrifa sinn eigin pantomime þátt : handbók fyrir kennara
Verkefnið Bresk leiklistarhefð inn í íslenskt skólakerfi er lokaverkefni mitt til B.Ed- gráðu við menntavísindasvið Háskóla Íslands. Verkefnið er tvíþætt, annars vegar er um að ræða handbók fyrir grunnskólakennara sem hefðu áhuga á að kynna og jafnvel skrifa sinn eigin pantomime þátt með nemendum sínum. Hins vegar er um að ræða greinagerð sem er ætluð sem fræðileg dýpkun á efni handbókarinnar. Í greinagerðinni er m.a. gerð grein fyrir fjölgreindarkenningu Howard Gardners og hvernig megi nýta hana í tengslum við pantomime formið og tengja íslensku skólakerfi. Verkefnið er hugsað til að vekja áhuga hjá kennurum á þessari bresku leiklistarhefð og vonandi gefa þeim aukna möguleika á að nota fjölbreytta kennsluhætti, sérstaklega í enskukennslu, með því að blanda þessari bresku hefð við íslenskt námsefni. Í handbókinni er að finna handrit sem höfundur samdi með 7. bekk í huga.