Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/934
Skipulag og stefnumótun eru nokkuð náin hugtök en þau eru nokkuð algeng í stjórnun fyrirtækja. Skipulag er ferli ákvarðana og athafnir byggðar á þeim en stefnumótun er síðan frekari útlistun á þessu ferli og snýst um að ná sem bestum árangri í rekstri fyrirtækja. Árangurinn grundvallast síðan á þeirri afstöðu fyrirtækisins, hvað það vill vera og hvað það vill verða í framtíðinni.
Ferðaþjónusta er atvinnugrein sem hefur verið í örum vexti, bæði hérlendis og erlendis. Vöxtur ferðaþjónustunnar hefur jafnvel verið meiri hér en annars staðar í Evrópu. Skipulag og stefnumótun eru einkum mikilvæg hugtök í ferðaþjónustu, m.a. vegna þess hversu þverfagleg og margþætt greinin er. Einnig er hún ung og enn í mótun en skipulag og stefnumótun geta verið leiðarljós í rétta átt.
Þórsmörk er einn vinsælasti ferðamannastaður Suðurlands en fjölmargir ferðamenn sækja svæðið heim á hverju ári. Skýrsluhöfundur gerir grein fyrir ferðaþjónustu á svæðinu en skoðar sérstaklega Húsadal, sem Kynnisferðir ehf. eiga og reka. Í skýrslunni eru skoðaðar sérstaklega lögbundnar skipulagsáætlanir á svæðinu. Þá eru skoðaðar tvær aðferðir til stefnumótunar en tilgangur skýrslunnar er síðan að þróa mögulega stefnu Kynnisferða í Húsadal með annarri aðferðinni.
Heitt vatn fannst nýlega í Húsadal sem kemur til með að gjörbylta öllu rekstrarumhverfi á svæði. Vetrarferðamennska og heilsuferðamennska eru meðal nýrra möguleika sem hægt væri að nýta. Lagt verður upp með þríþætta lykilhæfni sem felst í nýtingu á auðlindum svæðisins. Þessir lykilþættir eru náttúra, menning og fagmennska.
Lykilorð:
• Skipulag
• Stefnumótun
• Ferðaþjónusta
• Ferðamannastaður
• Þórsmörk
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
kynnisferdir.pdf | 2.87 MB | Takmarkaður | Þróun stefnumótunar Kynnisferða ehf. í Þórsmörk - heild | ||
kynnisferdir_e.pdf | 141.35 kB | Opinn | Þróun stefnumótunar Kynnisferða ehf. í Þórsmörk - efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
kynnisferdir_h.pdf | 149.68 kB | Opinn | Þróun stefnumótunar Kynnisferða ehf. í Þórsmörk - heimildaskrá | Skoða/Opna | |
kynnisferdir_u.pdf | 115.69 kB | Opinn | Þróun stefnumótunar Kynnisferða ehf. í Þórsmörk - útdráttur | Skoða/Opna |