Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/9350
Tilgangur þessa lokaverkefnis var að komast að því hvernig leikir hentuðu í fjölmenningarlegu umhverfi. Leikskólar landsins eru vel flestir orðnir fjölmenningarlegir þ.e. nemendum frá öllum heimshornum hefur fjölgað svo um munar undanfarin ár. Leikurinn er talin vera undirstaða alls náms leikskólabarna og er því mikilvægur hlekkur í fjölmenningarlegu uppeldi þeirra. Í verkefninu skoðuðum við hvað fjölmenningarkennsla felur í sér og hvað nokkrir fræðimenn leggja áherslur á. Við vildum finna leið til að byggja upp sjálfsmynd barna og félagsleg samskipti og komumst að því að samvinnunám er góð leið til þess en hún er frekar grunnskólamiðuð. Með samvinnuleikjum teljum við að hægt sé að aðlaga þessa hugmyndafræði að leikskólastigi vegna þess að samvinnuleikir eru góð leið til að efla og örva tillitssemi, hjálpsemi og samskiptahæfni. Við gerðum handbók sem inniheldur safn af samvinnuleikjum sem á að auðvelda starfsfólki leikskóla að vinna með fjölbreyttan barnahóp í gegnum leikinn.
Efnisorð:
Fjölmenning, fjölmenningarleg kennsla, sjálfsmynd barna, samvinnunám, samvinnuleikir, leikur og hreyfing.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
B.Ed._ritgerd_skemma.pdf | 770,65 kB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna | |
leikjabok_samvinnuleikir_skemma.pdf | 2,25 MB | Opinn | Handbók | Skoða/Opna |