Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/9391
Hjálpartæki eru stór hluti af daglegu lífi margra fatlaðra einstaklinga og gott aðgengi upplýsinga um hjálpartæki er því mikilvægt. Í þessu B.A verkefni fjalla ég um það hvernig aðgengi að upplýsingum um hjálpartæki er í dag. Kannað var hvort aðgengið hefði áhrif á notkun hjálpartækja meðal fagmanna og notenda og hvernig þekking berst milli fagmanna í gegnum teymisvinnu. Farið verður yfir hvernig ólík sjónarhorn á fötlun fléttast saman við mannréttindi, sér í lagi er lúta að aðgengi að upplýsingum. Teymisvinna fagmanna var könnuð eins og hún kemur fyrir innan starfsvettvangs þroskaþjálfa og tengd við þekkingu þroskaþjálfa á hjálpartækjum. Kannað var hvort fagmenn bendi skjólstæðingum og samstarfsaðilum sínum á lausnir tengdar hjálpartækjum, og hvernig notendum er bent á að leita sér upplýsinga um hjálpartæki. Kynnt verður ferlið sem notendur þurfa að ganga í gegnum til að fá hjálpartæki og það skoðað út frá ólíkum sjónarhornum á fötlun. Rannsóknin byggir á niðurstöðum fjögurra viðtala. Helstu niðurstöður könnunarinnar benda til að auðvelda þurfi aðgengi upplýsinga um hjálpartæki, efla teymisvinnu, auka fræðslu um hjálpartæki í námi þroskaþjálfa og greiða leið notenda til umsóknar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Ba-verkefni Brynhildur.pdf | 608.54 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
kápa skil.pdf | 31.24 kB | Opinn | Forsíða | Skoða/Opna | |
titilsíða skil.pdf | 72.49 kB | Opinn | Titilsíða | Skoða/Opna |