Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9406
Viðfangsefni þessa verkefnis er að skoða áhrif þjónustu á fjölskyldur fatlaðra barna.
Verkefnið hefst með fræðilegum grunni þar sem farið er yfir þætti eins og hvernig
fjölskyldan er skilgreind og hvert sé hlutverk hennar fyrir einstaklinginn. Saga og
viðhorf til fatlaðra og fjölskyldna þeirra eru rakin. Sagt er frá upplifunum og
viðbrögðum foreldra og systkina þegar barn í fjölskyldunni greinist með fötlun. Kynnt
eru þau sjónahorn, lög og reglugerðir sem þjónusta við fjölskyldur fatlaðra barna eru
byggðar á. Sagt er er frá fjölskyldumiðaðri þjónustu og valdeflingu.
Tekin voru viðtöl við tvær fjölskyldur. Gerð var vettvangskönnun þar höfundur
hlustaði á 16 viðtöl foreldraráðgjafa við 11 fjölskyldur og þjónustuaðila þeim
tengdum. Upplifanir þessar fjölskyldna voru síðan skoðaðar með það í huga að kanna
áhrif þjónustu á fjölskyldulífið
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BA ritgerð lokaeintak.pdf | 466.4 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |