Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/9549
Greinargerðin er hluti af lokaverkefni til B.ed. prófs við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Greinargerðin er unnin samhliða Hugmyndabók fyrir kennara um samþættingu verklegrar og bóklegrar kennslu á yngsta stigi grunnskólans.
Í greinargerðinni fjöllum við um mikilvægi list- og verkgreina í skólastarfi og samþættingu námsgreina. Einnig fjöllum við um hvernig stuðla megi að alhliða þroska nemenda í gegnum nám. Í lok greinargerðarinnar er hugmyndabókinni gerð skil og verkefni hennar tengd við Aðalnámskrá grunnskóla.
Hugmyndabókinni er skipt í tvennt. Í fyrri hluta hennar má finna 16 verkefni sem samþætta list- og verkgreinar við bóklega kennslu og fjögur verkefni sem einungis eru tengd við list- og verkgreinar. Í seinni hluta bókarinnar er farið yfir markmiðin sem tengjast verkefnunum og jafnframt er komið inn á þá þroskaþætti sem tengjast hverju verkefni fyrir sig.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Hugmyndabok.pdf | 7.77 MB | Lokaður | |||
Greinargerð með Hugmyndabók fyrir kennara um samþættingu verklegra og bóklegra greina á yngsta stigi grunnskólans.pdf | 578.94 kB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna |