Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/957
Tilgangur verkefnisins var að varpa ljósi á hvort myndlistakennsla er kennd á
fagmiðaðan hátt í fámennum íslenskum grunnskólum eins og núgildandi aðalnámskrá
í listum segir til um, nú eftir að nokkur reynsla er komin á núgildandi aðalnámskrá.
Leiddar eru líkur að því að kennsluaðferðin Discipline Based Art Education, (DBAE),
sem þýtt hefur verið fagmiðuð myndlistakennsla, henti vel til þess að ná fram þeirri
fagmiðuðu myndlistakennslu, sem stefnt er að í Aðalnámskrá grunnskóla, Litgreinar
frá árinu 1999.
Ritgerðin er byggð upp á köflum um íslenskar aðalnámskrár fyrr og nú,
fagmiðað myndlistanám og fámenna grunnskóla. Í lokin er kafli um könnun sem
höfundur gerði á myndlistakennslu í fámennum grunnskólum og umræður um
niðurstöður. Gagna var aflað með því að senda spurningalista, til aðila sem sáu um
myndlistakennslu í fámennum grunnskólum í Þingeyjarsýslum skólaárið 2003-2004.
Spurningalistinn var saminn með það fyrir augum að athuga hverjir kenndu myndlist í
fámennum grunnskólum, og hvort þeir kenndu á fagmiðaðan hátt.
Niðurstöður könnunarinnar benda til þess að óvíða eða hvergi í fámennum
skólum í Þingeyjarsýslu sé hugmyndafræði fagmiðaðrar myndlistakennslu framfylgt
öllum þáttum, en víða megi greina viðhorf og verklag sem vísi í þá átt. Flestir
þátttakenda lögðu ekki jafna áherslu á fagþætti myndlistar, en kennsluaðferðin DBAE
gerir ráð fyrir að það sé gert. Eins nota flestir tölvutækni lítið við myndlistakennslu
en aðalnámskráin leggur töluverða áherslu á hana. Einnig sögðust um þriðjungur
aðspurða, að ekki væri til stefna í skólanum um myndlistakennslu sem er grundvöllur
fagmiðaðar myndlistakennslu.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
famenn.pdf | 318.5 kB | Takmarkaður | Fámenn fagmiðuð myndlistakennsla - heild | ||
famenn_e.pdf | 9.15 kB | Opinn | Fámenn fagmiðuð myndlistakennsla - efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
famenn_h.pdf | 15.9 kB | Opinn | Fámenn fagmiðuð myndlistakennsla - heimildaskrá | Skoða/Opna | |
famenn_u.pdf | 55.09 kB | Opinn | Fámenn fagmiðuð myndlistakennsla - útdráttur | Skoða/Opna |