Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9790
Markmið þessarar B.Sc. ritgerðar er tvíþætt. Annars vegar að fjalla almennt um eignaleigusamninga og hins vegar að fjalla sérstaklega um möguleika Lýsingar hf. á að hefja gerð rekstrarleigusamninga með breyttu sniði. Fjallað var um rekstrarleigu og fjármögnunarleigu almennt og gerð grein fyrir mismuni þessara tveggja grunn tegunda eignaleigusamninga út frá ýmsum þáttum. Þá voru kannaðar forsendur fyrir því að Lýsing hf. hefji gerð rekstrarleigusamninga. Könnuð var verðþróun bifreiða og reynt að fá innsýn í þær forsendur sem liggja þurfa að baki útreikningi á leigugreiðslu slíkra samninga með tilliti til þeirrar áhættu sem Lýsing hf. tekur. Einnig voru gerðar tillögur að bókhaldslegri meðferð samninga að því tagi sem um er rætt ásamt því að kanna mögulega arðsemi af verkefninu út frá ólíkum forsendum. Helstu niðurstöður gera grein fyrir þeim forsendum sem til þurfa svo lágmarka megi áhættu Lýsingar hf. af verkefni sem þessu og hámarka mögulegan hagnað ásamt skilgreiningu á þeim breytum sem liggja þar til grundvallar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BSCFINAL_freyrgustavsson.pdf | 4.53 MB | Lokaður til...01.06.2031 | Heildartexti |