Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/9825
Í þessari ritgerð er fjallað um ýmsa þætti er snerta umhverfið; svo sem neytendur umhverfisvænna vara, markaðssetningu á umhverfisvænum vörum og fyrirtæki sem eru umhverfisvæn. Litið er til ýmissa rannsókna sem gerðar hafa verið á þessum málefnum. Í tengslum við þessa ritgerð var gerð rannsókn á íslenskum markaði þar sem viðhorf íslenskra neytenda var kannað í garð umhverfisvænna vara og fyrirtækja. Úrtak rannsóknarinnar var 510 manns, 64,5% konur og 35,5% karlar. Rannsóknin var megindleg og var í formi spurningakönnunar sem aðeins var aðgengileg þátttakendum í gegnum veraldarvefinn. Við túlkun á niðurstöðum kom í ljós að tilgáta 1 telst sönn, en svarendur sýndu vilja til að greiða hærra verð fyrir umhverfisvænar vörur. Tilgáta 2 telst ekki sönnuð, en ekki fengust nógu afgerandi niðurstöður að mati höfunda til að geta dregið ályktun um að neytendur beri traust til umhverfisstarfsemi íslenskra fyrirtækja.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Berglind Dögg Helgadóttir - Sveinn J. Sveinsson - B.Sc. - 2011.pdf | 1.22 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |