Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/9831
Þessi ritgerð fjallar um fjármálareglur sem gert er ráð fyrir að verði lögfestar samkvæmt frumvarpi til nýrra sveitarstjórnarlaga. Um er að ræða tvær viðmiðanir, önnur tengis rekstrarafkomu og skyldar sveitarfélög til að ná jafnvægi eða jákvæðri niðurstöðu á milli rekstrartekna og -gjalda samstæðu A- og B-hluta á hverju þriggja ára tímabili. Hin síðari varðar skuldsetningu sveitarfélaga. Með henni verður sveitarfélögum óheimilt að skulda meira en sem nemur 150% af tekjum ársins. Tekin er afstaða til þess hvort þessar viðmiðanir séu hæfilegar við mat á fjárhagsstöðu sveitarfélaga eða líklegar til að koma í veg fyrir að þau komi sér í fjárhagsvanda.
Helstu niðurstöður eru þær að fjármálareglurnar tvær dugi ekki óbreyttar sem viðmiðanir til að meta fjárhagsstöðu sveitarfélaga. Í niðurstöðum er gerð tillaga um viðbót við jafnvægisregluna. Nauðsynlegt er að takmarka heimildir sveitarfélaga til skuldsetningar og getur 150% skuldahámark talist hæfileg viðmiðun að því gefnu að framlegð frá rekstri geti staðið undir greiðslubyrði lána í heild sinni ekki einungis fjármagnsgjöldum þeirra.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
Fjármál_sveitarfélaga_13.5.2011.pdf | 868.43 kB | Open | Complete Text | View/Open |