Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/9832
Kannað er með aðhvarfsgreiningu hvaða þættir hafa áhrif á fjárfesta þegar þeir skortselja hlutabréf. Athugað er hvort flökt hlutabréfa hafi áhrif á magn sem er skortselt. Einnig er kannað í þessu samhengi hvort PE hlutfall og stærð fyrirtækis hafi áhrif á ákvarðanir fjárfesta þegar þeir skortselja. Notuð voru gögn úr Kauphöll New York sem spanna eitt ár. Tekin voru fyrir 12 fyrirtæki innan vísitölunnar S&P 500. Niðurstöður benda til þess að bréf sem hafa hátt flökt séu frekar skortseld, eða með öðrum orðum að áhættusamari bréf séu frekar skortseld. Einnig kom í ljós að stór fyrirtæki eru hlutfallslega minna skortseld en lítil fyrirtæki.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
B.Sc.Skortsala_og_flökt_hlutabréfa.pdf | 712.46 kB | Open | Heildartexti | View/Open |