Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/39480
Haustið 2019 er Hákon Örn Helgason á barmi örvæntingar í Vesturbæjarlaug. Eyrum hans berast ljúfir tónar. Á bakkanum situr maður og spilar á banjó. Hver er þessi maður? Hvernig þorir hann að spila á banjó á almannafæri? Hefur hann svörin við stóru spurningum lífsins?
Löngu síðar ákveður Hákon að leggja í stærstu svaðilför lífs síns og hefja ævintýralega leit að þessum dularfulla banjóspilara. Hann setur upp rannsóknarstofu og ræður til sín teymi. Hver er hann og hvar?
Aðstandendur:
Dramatúrg: Magnús Thorlacius
Tónlist: Inspector Spacetime
Leikmyndahönnun: Rakel Andrésdóttir
Leikmyndamálun og aðstoð: Helena Margrét Jónsdóttir
Smiður: Egill Ingibergsson
Ljós: Stefán Ingvar Vigfússon
Leikarar: Stefán Þór Þorgeirsson og Almar Blær Sigurjónsson
Hönnun: Margrét Aðalheiður Önnu- Þorgeirsdóttir
Þakkir:
Anna Kristín, Andre Negrier, Fjölnir Gíslason, Mio Storåsen, Sigurlaug Þuríður Ragnarsdóttir, Tryggvi Sæberg Björnsson, Vignir Þór Pálsson, Hilmir Jensson, Karl Ágúst Þorbergsson og Smeykasti bekkurinn.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
HakonOrnHelgason_lokaverkefni_svidshofundabraut2021.pdf | 96.29 kB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna |