Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/33888
Í ritgerðinni er fjallað um samkeppni um athygli í nútímanum og þá sérstaklega í tengslum við myndlist. Höfundur, sem er fyrsta kynslóð þeirra sem alast upp við heim tölvunnar frá fæðingu, leitar aftur til bernskunnar til að finna grunntengsl sín við myndlist og veltir fyrir sér eiginleikum þeirrar myndlistar sem fangaði saklausan barnshugann. Sagt er frá verkum úr ferli höfundar og þau sett í samhengi við önnur skyld myndverk annarra höfunda. Verkin fjalla sum um að fanga huga nútímamannsins, og gildi og virði athyglinnar í kapítalísku samhengi þar sem hún er söluvara. Höfundur fjallar um hvernig hann notar oft samskonar meðul og markaðurinn, eins og t.d. skömm, vanlíðan og verðlaun, til að ná athygli áhorfandans.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
666GREINARGERD666.pdf | 2.25 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |