is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Listaháskóli Íslands > Tónlistardeild / Department of Music > Lokaritgerðir / Theses (BA, B.Mus.) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/31020

Titill: 
  • Þórarinn Guðmundsson : íslenskur fiðluleikari á fyrri hluta 20. aldar
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Þórarinn Guðmundsson var stjarna í íslensku tónlistarlífi á fyrrihluta 20. aldar og jafnframt fyrsti Íslendingurinn til að ljúka háskólaprófi í fiðluleik. Hann var brautryðjandi í íslensku tónlistarlífi og starfaði á fjölmörgum sviðum tónlistar. Þórarinn spilaði bæði einleiks- og kammerverk á tónleikum og skemmtunum í Reykjavík. Auk þess starfaði hann sem fiðlukennari, fiðluleikari hjá Nýja bíói og var tónlistarmaður hjá Ríkisútvarpinu. Á sviði hljómsveitarleiks var hann einnig frumkvöðull. Ásamt því að stofna og stjórna Hljómsveit Reykjavíkur stjórnaði hann barnahljómsveit, lék í Symfóníuhljómsveit FÍH og var fiðluleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands frá stofnun hennar. Þórarinn Guðmundsson var stofnmeðlimur og fyrsti formaður Félags íslenskra tónlistarmanna árið 1940, heiðursfélagi í FÍH og Tónskáldafélagi Íslands. Árið 1970 var Þórarinn sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir framlag sitt til íslensks tónlistarlífs.

Samþykkt: 
  • 12.6.2018
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/31020


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
elisa_bmus_lhi_2016.pdf1.51 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna