<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-29T21:14:02Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/10120" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/10120</identifier><datestamp>2018-10-15T08:52:59Z</datestamp><setSpec>com_1946_2000</setSpec><setSpec>com_1946_1992</setSpec><setSpec>col_1946_2002</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskólinn á Bifröst</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Guðrún Helga Stefánsdóttir 1967-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Guðbrandur Benediktsson 1973-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Viðfangsefni þessarar fræðilegu greinagerðar er að rannsaka ofan í kjölinn sköpunarferli&#xd;
sögusýninga í söfnum. Það var gert annarsvegar með því að kafa ofan í fræðilegt efni&#xd;
um söfn og sýningar í þeim tilgangi að kynna sér helstu kenningar og aðferðir í þessum&#xd;
efnum; og hinsvegar með beitingu kenninganna í uppsetningu á sýningu um Sveinbjörn&#xd;
Sveinbjörnsson (1847-1927) tónskáld í Tónlistarsafni Íslands sem opnaði 11. mars&#xd;
2011. En höfundur var jafnt sýningarstjóri, hönnuður sem textasmiður sýningarinnar.&#xd;
Safnastarf felst í því að safna, varðveita, skrá, og rannsaka menningararfinn, það&#xd;
vill segja allar heimildir er hafa með manninn og umhverfi hans að gera, og miðla&#xd;
þekkingu um hann til nýrra kynslóða. Söfn eru þar með hluti menntunarkerfisins þótt&#xd;
með óformlegum hætti sé. Með starfi sínu stuðla söfn að því að þekking fari ekki&#xd;
forgörðum heldur færist á milli kynslóða, en þekking á fortíðinni er forsenda fyrir&#xd;
áframhaldandi þróun samfélags og menningar. Sýning er hin hefðbundna leið safna til&#xd;
að kynna niðurstöður rannsókna og miðla þekkingu um meðal annars menningararf,&#xd;
menningu og samfélag. Eitt veigamesta atriðið fyrir gerð sýningar er að ákveða hver&#xd;
grunnhugmynd að baki hennar er. Góð grunnhugmynd skýrir frá og afmarkar eðli og&#xd;
tilgang sýningar, og leggur auk þess fram vel skilgreind markmið en með hjálp þeirra&#xd;
má síðar meta hvort tilætluðum árangri hafi verið náð. Mikilvægt er að sýningarteymið&#xd;
sannmælist um það að fara eftir leiðarljósi sýningar svo allir stefni í sömu átt. Eins er&#xd;
árangur sýningar að miklu leyti undir því kominn að fyrirmæli til hönnuðar og&#xd;
textahöfundar séu skýr hvað tilgang og markmið sýningar varðar.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2011-09-20T09:40:50Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2011-09-20T09:40:50Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2011-09-20</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2011-09-20T09:40:32Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2011-06</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/10120</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Félagsvísindi</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Menningarstjórnun</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Sögusýning</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Tónlistarsafn Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Sýning verður til : frá grunnhugmynd til framkvæmdar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Master's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>