<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-11-27T17:57:49Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/10330" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/10330</identifier><datestamp>2018-10-15T08:57:49Z</datestamp><setSpec>com_1946_2003</setSpec><setSpec>com_1946_1992</setSpec><setSpec>col_1946_2005</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskólinn á Bifröst</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Bragi Freyr Kristbjörnsson 1985-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Soffía Eydís Björgvinsdóttir 1970-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" lang="is">Meginmál ritgerðar er lokað</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Þessi ritgerð fjallar á heildstæðan hátt um tilurð og meðferð leiðréttingarskyldu&#xd;
virðisaukaskatts í frjálsri og sérstakri skráningu. Í lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt,&#xd;
er að finna ákvæði sem heimilar svokallaðar frjálsar og sérstakar skráningar á&#xd;
virðisaukaskattskrá. Orðalag ákvæðisins er fremur fátæklegt, en gerir þó ráð fyrir heimild&#xd;
fjármálaráðherra til að setja nánari reglur um þessar skráningarleiðir. Sú heimild hefur&#xd;
verið nýtt með setingu reglugerða nr. 576/1989, um virðisaukaskatt af byggingarstarfsemi&#xd;
og nr. 577/1989, um frjálsa og sérstaka skráningu vegna leigu og sölu á fasteign. Reglur&#xd;
um þetta efni heimila þeim, sem byggja fasteignir í þeim tilgangi að selja þær&#xd;
virðisaukaskattskyldum aðilum eða leigja fasteignir í atvinnuskyni, að vera innan&#xd;
skattskyldusviðs laga nr. 50/1988, en fasteignir eru að öðru leyti utan skattskyldusviðs&#xd;
laganna. Slíkir aðilar njóta m.a. rýmri heimilda til frádráttar á innskatti, sem aðilum utan&#xd;
virðisaukaskattskerfisins standa ekki til boða. Þær heimildir eru þó háðar því að skilyrði&#xd;
virðisaukaskattsfrádráttarins haldist óbreytt á tilteknu tímabili, eða verði yfirtekin af&#xd;
öðrum, þar til bærum aðila. Að öðrum kosti þarf sá sem notið hefur frádráttarréttar á&#xd;
virðisaukaskatti að endurgreiða (bakfæra/leiðrétta) þann virðisaukaskatt sem fengist hefur&#xd;
frádreginn. Jafnan er talað um leiðréttingarskyldu virðisaukaskatts, eða að leiðrétta þurfi&#xd;
virðisaukaskattskvöð. Þessi leiðréttingarskylda er bundin í ákvæði laga nr. 50/1988, sem&#xd;
annars fer ekki mörgum orðum um hvernig meðferð leiðréttingarskyldunnar skuli hagað.&#xd;
Á grundvelli heimildar í framangreindum lögum hefur fjármálaráðherra sett reglugerð nr.&#xd;
192/1993, um innskatt, sem fjallar með nákvæmari hætti um meðferð&#xd;
leiðréttingarskyldunnar.&#xd;
Leitast er við að svara spurningunni um hvernig fara skuli með leiðréttingarskyldu&#xd;
virðisaukaskatts við gjaldþrotameðferð aðila sem leiðréttingarskyldan hvílir á. Hér er&#xd;
einnig fjallað ítarlega um skilyrði frjálsrar og sérstakrar skráningar, tilurð&#xd;
leiðréttingarskyldunnar og þær fjölmörgu flóknu reglur sem gilda um meðferð hennar. Í&#xd;
lok ritgerðarinnar eru álitaefni í tenglsum við leiðréttingarskylduna sett í samhengi við&#xd;
réttarreglur fullnusturéttarfars</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2011-12-05T15:46:24Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2011-12-05T15:46:24Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2011-12-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2011-12-05T14:42:55Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2011-09</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/10330</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Lögfræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Skattaréttur</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Virðisaukaskattur</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Gjaldþrot</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Tilurð leiðréttingarskyldu virðisaukaskatts í frjálsri og sérstakri skráningu og meðferð við gjaldþrot</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Master's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>