<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-10-05T21:44:38Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/10649" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/10649</identifier><datestamp>2018-10-15T13:41:30Z</datestamp><setSpec>com_1946_2062</setSpec><setSpec>com_1946_2057</setSpec><setSpec>col_1946_2092</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Margrét Lára Höskuldsdóttir 1985-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Sigríður Sigurjónsdóttir 1960-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Þessi ritgerð er lögð fram til B.A.-prófs í íslensku á Hugvísindasviði Háskóla Íslands. Í henni eru skoðaðar breytingar á nokkrum framburðareinkennum 77 einstaklinga á 70 ára tímabili. Björn Guðfinnsson málfræðingur prófaði þá fyrst á Norðausturlandi um 1940 í viðamikilli rannsókn sinni á framburðarmállýskum. Þeir voru þá um 12 ára gamlir. Sumarið 2010 og 2011 var svo rætt við þessa sömu einstaklinga aftur þegar þeir voru orðnir um áttrætt í eins konar framhaldsrannsókn af rannsókn Björns, en hún heitir Málbreytingar í rauntíma í íslensku hljóðkerfi og setningagerð (RAUN). &#xd;
	Þessir einstaklingar skiptast í tvo hópa. 36 þeirra höfðu flust til Reykjavíkur en 41 bjó enn á heimaslóðum á Norðausturlandi. Þau framburðareinkenni sem voru skoðuð eru oftast kennd við norðlensku. Þau eru harðmæli, raddaður framburður og bð-/gð-framburður. Meginmarkmið ritgerðarinnar var að kanna hvort og þá hvernig norðlensku einkennin breyttust hjá þessum einstaklingum og hvort búseta þeirra hafði áhrif á breytingarnar. &#xd;
	Meginniðurstöður þessarar rannsóknar eru þær að öll mállýskueinkennin sem voru skoðuð höfðu látið undan síga og búsetan hefur áhrif á þau. Þeir sem dvöldust áfram á heimaslóðum héldu í öllum tilfellum betur í hvert framburðareinkenni fyrir sig miðað við þá sem fluttust til Reykjavíkur. Hið svokallaða harðmæli, sem er líklega best þekkta framburðareinkenni norðlenskunnar, heldur sér best bæði hjá þeim sem voru áfram á heimaslóðum og þeim sem fluttust til Reykjavíkur. Hin tvö framburðareinkennin, raddaði framburðurinn og bð-/gð-framburðurinn, halda sér ekki eins vel og virðast bæði vera á talsverðu undanhaldi.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2012-01-20T09:05:33Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2012-01-20T09:05:33Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2012-01-20</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2012-01-19T16:05:31Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2012-01</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/10649</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Íslenska</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Framburður tungumála</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Norðausturland</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Ertu nokkuð búin(n) að [tha:pha] þér?  Framburður Norðlendinga á Norðausturlandi og í Reykjavík á árunum 1940–2011</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>