<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-29T11:43:30Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/10853" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/10853</identifier><datestamp>2018-10-12T10:33:32Z</datestamp><setSpec>com_1946_4482</setSpec><setSpec>com_1946_3515</setSpec><setSpec>col_1946_4484</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Landbúnaðarháskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Alma Dröfn Benediktsdóttir 1980-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Sigríður Kristjánsdóttir 1967-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Þessi ritgerð fjallar um skipulagsmál fyrr og nú. Unnið er út frá hugmyndum Guðmundar Hannessonar sem var frumkvöðull í skipulagsmálum á Íslandi. Skrif hans úr bókinni Um skipulag bæja sem kom út árið 1916 verða borin saman við tvö hverfi á&#xd;
höfuðborgarsvæðinu og skoðað hvernig áherslur í skipulagsmálum hafa breyst í tímans rás. Þrjú atriði frá Guðmundi verða tekin fyrir, en þau eru götu- og gatnaskipan, vellir og torg ásamt birtu og athugað hvort kenningar hans frá fyrstu áratugum 20. aldar hafi ennþá notagildi í skipulagi á fyrsta áratug 21. aldar.&#xd;
Hverfin sem um ræðir eru austari hluti Þingholtanna í Reykjavík og Sjálandshverfið í Garðabæ og eru þau bæði íbúahverfi. Hverfin eru mjög ólík, annað er húsahverfi nálægt miðbæ höfuðborgar landsins, hitt bryggjuhverfi byggt á landfyllingu við sjó í útjaðri höfuðborgarsvæðisins. Tímabilið á milli skipulags hverfanna spannar hátt í eina öld, því skipulag Þingholtanna var unnið á árunum 1924-1927 og samþykkt 1927 og er það skipulag verk Guðmundar og algjörlega eftir hans kenningum. Deiliskipulag&#xd;
Sjálandshverfisins er hins vegar samþykkt árið 2002 og endurskoðað árið 2004. Hverfin tvö voru skipulögð á mjög ólíkum forsendum, því það hafa orðið ótrúlega miklar breytingar í þjóðfélaginu á þessum nær 80 árum sem liðin eru frá skipulagningu&#xd;
Þingholtanna, þegar hesturinn var þarfasti þjónn mannsins og bílaeign landsmanna af skornum skammti. Skoðun á skipulagi hverfanna, gerð gátlista og vettvangsskoðanir þar sem rýnt var í&#xd;
hvert atriði fyrir sig, leiddi í ljós að þrátt fyrir hinar miklu breytingar sem orðið hafa á liðinni öld, þá standa kenningar Guðmundar ennþá fyllilega fyrir sínu. Þjóðfélagið hefur þó breyst á tímabilinu úr frumstæðu sjálfþurftarsamfélagi inn í tæknivætt þjónustu- og viðskiptaþjóðfélag nútímans með breyttar áherslur í landnýtingar- og samgöngumálum. Þegar Guðmundur vann sitt skipulag þá var Reykjavík í raun lítið þorp og nær ómögulegt fyrir hann að sjá fyrir að í upphafi nýrrar aldar myndi bílaeign landsmanna vera komin yfir 200 þúsund talsins. Lokaniðurstaðan er samt sem áður sú eftir samanburð á hverfunum tveimur, að þrátt fyrir ýmsa annmarka og hnökra í samgöngumálum Þingholtanna, þá kemur nær aldargamalt skipulag mun betur út í flestum málaflokkum.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2012-02-21T11:25:50Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2012-02-21T11:25:50Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2012-02-21</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2008-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/10853</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Þéttbýli</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Þróun</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Skipulag</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Rýnt í skipulag Þingholtanna og Sjálandshverfisins út frá hugmyndum Guðmundar Hannessonar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>