<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-10-02T01:02:08Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/10854" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/10854</identifier><datestamp>2018-10-12T10:33:30Z</datestamp><setSpec>com_1946_4482</setSpec><setSpec>com_1946_3515</setSpec><setSpec>col_1946_4484</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Landbúnaðarháskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Bryndís Ósk Haraldsdóttir 1952-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Jón S. Ólafsson 1959-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Meðal helstu afræningja í tjörnum hér á landi eru án efa hornsíli, vatnaklukkur og ýmsir aðrir hópar hryggleysingja. Þetta á einkum við tjarnir þar sem stærri fiskur s.s. bleikja þrífst ekki. Fáar rannsóknir hafa verið gerðar sem varpa ljósi á fæðuvefi tjarna hérlendis. Meginmarkmið þeirrar rannsóknar sem hér er fjallað um var að kortleggja útbreiðslu og mæla magn hornsíla og vatnaklukkna í tjörnum í mismunandi hæð yfir sjávarmáli og á mismunandi berggrunni. Rannsóknin náði til sex svæða, þrjú þeirra voru á láglendi og þrjú ofan við 300 m hæð yfir sjó (hálendi). Fór rannsókn þessi fram á árunum 2004 til 2008. Láglendissvæðin voru við Berufjörð í Reykhólahreppi, Hjaltastaðaþinghá á Úthéraði og í fuglafriðlandinu í Flóanum. Hálendissvæðin voru á Þorskafjarðarheiði, Fljótsdalsheiði og í Þúfuveri í Þjórsárverum. Alls voru kannaðar 114 tjarnir, á bilinu 14 til 26 á hverju svæði. Sýnatökur voru frá júnílokum og fram í júlíbyrjun. Hornsíli veiddust aðeins á láglendu svæðunum. Einna mest veiddist af hornsílum í votlendi við Hríshól í Berufirði. Brunnklukkur veiddust á öllum svæðum en grænlandsklukkur fundust ekki á Þorskafjarðarheiði og í Flóanum. Töluverð skörun var á milli útbreiðslu brunnklukkna og grænlandsklukkna. Mjög lítil skörun var hinsvegar á útbreiðslu hornsíla og grænlandsklukkna. Aðeins örfá dæmi voru um að þessar tvær tegundir veiddust í sömu tjörn. Í votlendi við Hríshól veiddust 297 síli og 3 grænlandsklukkur og í Hjaltastaðaþinghá veiddust 34 síli og 1 grænlandsklukka. Í ljós kom mikill munur á tegundasamsetningu dýra í tjörnunum, sem m.a. var háð því hvort þær voru staðsettar á hálendi eða láglendi. Ennfremur kom í ljós munur á milli tjarna innan sama svæðis, sem m.a. fólst í að í tjörnum við Hríshólsvatn í Berufirði veiddust hornsíli í öllum tjörnum nema einni og í Flóanum í öllum tjörnum. Í Hjaltastaðaþinghá veiddust hornsíli í sex tjörnum af tuttugu og má búast við að þar hafi tjarnir þornað upp árið áður, eða botnfrosið. Lengdardreifing sílanna bendir til að um tvo árganga sé að ræða.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2012-02-21T11:44:04Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2012-02-21T11:44:04Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2012-02-21</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2010-03</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/10854</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Hálendi</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Láglendi</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Grænlandsklukkur</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Brunnklukkur</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Rándýr</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Afræningjar í tjarnavistkerfum: klukkur og hornsíli</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>