<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-27T03:14:22Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/10855" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/10855</identifier><datestamp>2018-10-12T10:33:25Z</datestamp><setSpec>com_1946_4482</setSpec><setSpec>com_1946_3515</setSpec><setSpec>col_1946_4484</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Landbúnaðarháskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">María Theodórsdóttir 1984-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Fanney Ósk Gísladóttir 1961-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Bogi Brynjar Björnsson 1978-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Í kjölfar mikilla úrkomu- og leysingaflóða í desember árið 2006 var Vatnamælingum Orkustofnunar falið að kortleggja útbreiðslu flóðanna og afla heimilda um eldri flóð. B.Sc. verkefni þetta var liður í gagnaöflun Vatnamælinga Orkustofnunar. Markmið&#xd;
verkefnisins var að kortleggja útbreiðslu flóðsins 2006 fyrir afmarkað svæði við Hvítá í Borgarfirði og afla heimilda um eldri flóð. Leitast var við að svara því hvort flóðið 2006&#xd;
hefði verið það stærsta á svæðinu eða hvort búast mætti við stærri flóðum á svæðinu. Áhrif veðurfarsþátta og sjávarfalla var skoðuð í samhengi við sögulegar flóðhæðir. Gögn voru fengin frá Vatnamælingum Orkustofnunar, Samsýn ehf., Veðurstofu Íslands og&#xd;
Landhelgisgæslunni. Útbreiðsla flóðsins 2006 var kortlögð í ArcGIS forriti með ýmsum gögnum og heimildum um útbreiðslu flóðsins, t.d. GPS mælingum á flóðförum (rek í landi eftir flóðvatn). Munnlegar heimildir landeigenda voru skráðar, bæði um flóðið 2006 og önnur söguleg flóð. Mælingar úr vatnshæðarmælum í Borgarfirði voru notaðar til að bera saman flóð árin 1971, 1983, 1992 og síðan 2006. Leitað var heimilda um söguleg flóð í skýrslusafni Vatnamælinga Orkustofnunar, bókasafni og blaðagreinum&#xd;
Morgunblaðsins á síðu Landsbókasafns Íslands (www.timarit.is) með leitarorðum sem tengdust flóðum og kennileitum á svæðinu. Stuðst var við þær niðurstöður til að setja upp yfirlit yfir flóð í Hvítá í Borgarfirði. Helstu niðurstöður verkefnisins voru að flóðið 2006 var ekki það stærsta sem hefur komið á svæðinu og því má vænta stærri flóða í náinni framtíð. Nákvæmni hæðargagna reyndis ekki nægileg til að gera áreiðanlegt hæðarlíkan af svæðinu og þannig álykta útbreiðslu sögulegra flóða. Engu skipulagi stendur ógn af útbreiðslu flóða í neðri hluta Hvítár, en áhrif flóða á fyrirhugaða hreinsistöð fráveitu á Hvanneyri eru ekki talin mikil. Á svæðinu eru bæir sem iðulega verða umflotnir í flóðum og var Ferjukot skoðaður sérstaklega í þessu verkefni. Samanburður á sögulegum flóðhæðum áður nefndra ára leiddi í ljós að mesta vatnshæð varð í flóðinu 1983, áhrif sjávarfalla gætir þegar stórstreymi er og frostakaflar fara minnkandi sem og snjóalög en þessir þættir hafa áhrif á afrennsli á frosinni jörð og leysingarvatn í úrkomu- og leysingaflóðum, þeirri tegund flóða sem var til skoðunar í þessu verkefni. Ályktað er að niðurstöður þessa verkefnis verði nýttar til skipulagsgerðar í Borgarbyggð í framtíðinni og verði til þess að nákvæmar hæðarmælingar verði gerðar á svæðinu til að fá nákvæmari gögn til hæðarlíkanagerðar. Einnig er lagt til að unnið verði áfram að öflun gagna um flóð&#xd;
í Borgarfirði umfram það svæði sem var tekið til skoðunar í þessu verkefni þar sem byggð á láglendi er til staðar á bökkum Hvítár í Borgarfirði og þverám hennar.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2012-02-21T13:16:08Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2012-02-21T13:16:08Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2012-02-21</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2008-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/10855</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Borgarfjörður</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Hvítá</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Vatnamælingar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Neðri hluti Hvítár í Borgarfirði: kortlagning flóðs 2006</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>