<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-30T02:23:41Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/10862" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/10862</identifier><datestamp>2018-10-12T10:18:29Z</datestamp><setSpec>com_1946_10520</setSpec><setSpec>com_1946_10473</setSpec><setSpec>com_1946_4443</setSpec><setSpec>com_1946_3515</setSpec><setSpec>col_1946_10525</setSpec><setSpec>col_1946_4478</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Landbúnaðarháskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskólinn á Hólum</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Gunnar Reynisson 1974-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Þorvaldur Kristjánsson 1977-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" lang="is">Útskrift frá:&#xd;
Háskólanum á Hólum - Hestafræðideild&#xd;
Landbúnaðarháskóla Íslands - Auðlindadeild</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Rannsóknin var gerð til að meta eiginleika gangtegundanna fets og tölts og fylgni á milli einstakra þátta hjá þessum tveimur gangtegundum. Í rannsóknina voru notaðir níu skólahestar á Háskólanum á Hólum og voru þeir teknir upp á myndband á feti og tölti, þrjár ferðir í senn á hvorri gangtegund, í þrjá daga. Notuð var venjuleg upptökuvél. Gögnin voru greind í hug-búnaði frá KINE sem heitir KineView. Nákvæmni við greininguna er 50 rammar á sekúndu (50Hz). Hestunum var riðið á löngum taum á frjálsu feti. Á tölti var reynt að finna hentugasta hraða fyrir hvern og einn hest, þar sem hann var sem jafnastur og í bestu jafnvægi, án of mikilla ábendinga frá knapa. Alls voru greind 81 skref á feti og 81 skref á tölti. Mældar voru skreflengdir hestanna, ásamt hraða, skreftíma og tímasetning niðurkomu fóta.&#xd;
Meðalhraði á tölti var 3,54 m/s, meðal skreflengd 1,91m og meðal yfirstig 0,47m. Hámarktæk fylgni var á milli hraða, skreflengdar og yfirstigs. Skreftími var að meðaltali 554 ms og reyndist stöðutími fóta að aftan marktækt lengri en að framan, eða DF=0,48 á móti DF=0,44. Stöðutími fóta hafði neikvæða fylgni við hraða.&#xd;
Hliðstæður tvístuðningur var mældur og reyndist hann marktækt lengri en skástæður tví-stuðningur, 50,8% á móti 32,1% . Taktur hrossanna var metinn og reyndist meiri hliðstæð tenging á tölti en skástæð, tími á milli snertingar hliðstæðra fóta var 22,3%, en tími milli snertingar skástæðra fóta var 27,7% Meðalhraði á feti var 1,59 m/s, meðal skreflengd 1,60m og meðal yfirstig 0,20m. Ekki mældist fylgni milli hraða og skreflengdar eða yfirstigs. Skreftími var að meðaltali 1032 ms. Ekki var marktækur munur á stöðutíma aftur- og framfóta, og var DF=0,63 fyrir bæði aftur-fætur og framfætur. Hliðstæður tvístuðningur var meira en tvöfalt lengri á feti en skástæður tvístuðningur; 33,47% á móti 14,55%. Taktur á feti var einnig metinn og var styttri tími á milli snertingar hliðstæðra fóta en skástæðra fóta; 20,44% á móti 29,57%. Lítil fylgni fannst milli fets og tölts hjá einstökum hestum. Veik fylgni fannst á skreflengd, hliðstæðs tvístuðnings og skástæðs tvístuðnings milli gangtegunda. Ekki fannst fylgni á takti milli gangtegunda hjá einstökum hestum.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2012-02-23T09:12:05Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2012-02-23T09:12:05Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2012-02-23</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2010-08</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/10862</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Hreyfigreining</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Skreflengd</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Skreftími</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Fet</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Tölt</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Taktur</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Hreyfigreining á feti og tölti íslenskra hrossa</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>