<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-30T15:18:40Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/11475" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/11475</identifier><datestamp>2018-10-15T13:28:31Z</datestamp><setSpec>com_1946_2061</setSpec><setSpec>com_1946_2057</setSpec><setSpec>col_1946_2069</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Baldvina Ýr Hafsteinsdóttir 1976-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Helga Jónsdóttir 1957-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Langvinn lungnateppa (LLT) er sá sjúkdómur sem helst getur herjað á fólk sem reykir eða hefur reykt. Áhrif sjúkdóms á líf og líðan einstaklinga með LLT eru veruleg. Enn vantar þó nokkuð upp á að áhrif sjúkdómsins á fjölskyldur séu þekkt. Tilgangur þessarar rannsóknar er annars vegar að gera fræðilega samantekt á rannsóknum á fjölskyldum fólks með LLT og hins vegar að lýsa frumniðurstöðum á áhrifum sjúkdóms á einstaklinga með langvinna lungnateppu annars vegar og fjölskyldur hins vegar.&#xd;
Rannsóknin er hluti meðferðarrannsóknar á sjálfsumönnun einstaklinga með LLT og fjölskyldna þeirra. Úrtakið var þægindaúrtak en alls voru 283 einstaklingar sem mögulega gætu verið með lungnasjúkdóm boðaðir til þátttöku í rannsókninni. Þar af voru 164 sem ýmist neituðu þátttöku eða voru útilokaðir þar sem þeir uppfylltu ekki viðmiðunargildi rannsóknar. Einstaklingarnir (N=119), sem boðin var þátttaka, voru hvattir til að hafa fjölskyldumeðlim með sér. Alls tóku 36 fjölskyldumeðlimir þátt. Í upphafi meðferðar svöruðu einstaklingarnir m.a. spurningalista um áhrif sjúkdóms (e. Illness Intrusiveness Scale) sem og spurningum um lýðfræðileg atriði. &#xd;
Meginniðurstöður fræðilega yfirlitsins sýna að rannsóknir á fjölskyldum einstaklinga með LLT eru af ýmsum toga og nánast eins fjölbreytilegar og þær eru margar. Samanburður og samþætting niðurstaðna er því erfiður.&#xd;
	Í þverskurðarrannsókninni var meðalaldur einstaklinga 59,7 ± 5,06 ár og fjölskyldumeðlima 51,7 ± 15,5 ár p=0,002. Munur reyndist líka á kyni hópanna en einstaklingar með LLT sem höfðu fjölskyldumeðlim með sér voru konur í 53% tilfella og í 64% tilfella voru konur fjölskyldumeðlimir p=0,000. Einstaklingarnir með LLT reyktu frekar en fjölskyldumeðlimirnir p=0,023 en ekki reyndist munur á menntun eða atvinnu þessara hópa.&#xd;
Ekki reyndist munur á hópi skjólstæðinga sem höfðu fjölskyldumeðlim með sér og þeirra sem ekki komu með fjölskyldumeðlim varðandi aldur, kyn, menntun eða atvinnu. Þeir sem höfðu fjölskyldumeðlim voru á hinn bóginn marktækt fleiri hættir að reykja en þeir sem ekki höfðu fjölskyldumeðlim með sér.&#xd;
Áhrif sjúkdóms á einstaklinga með LLT sem komu með fjölskyldumeðlim voru 27,65 heildarstig á áhrif sjúkdóms mælitækinu af 91 stigum mögulegum. Svið tæknilegrar getu hafði þar mest að segja en svið samskipta og persónulegs þroska minnst. Áhrif sjúkdóms á fjölskyldumeðlimi einstaklinga með LLT voru 19,63 heildarstig á Áhrifa sjúkdóms mælitækinu. Svið tæknilegrar getu hafði hæstu stigin en svið samskipta og persónulegs þroska lægstu. Marktækur munur reyndist á áhrifum sjúkdóms á einstaklinga með LLT annars vegar og fjölskyldumeðlimum hins vegar. Ekki reyndist marktækur munur á áhrifum sjúkdóms hjá einstaklingum með LLT sem komu með fjölskyldumeðlimi eða einstaklingum sem ekki komu með fjölskyldumeðlimi.&#xd;
Þessar frumniðurstöður gefa til kynna að sjúkdómurinn langvinn lungnateppa á stigi II og III og meðferð hans hafi lítil áhrif á einstaklingana sem bera sjúkdóminn og óveruleg áhrif á fjölskyldumeðlimi þeirra. Þessum niðurstöðum þarf að taka með varúð. Samkvæmt skilgreiningum eru einkenni LLT á stigi III mjög alvarleg en á því stigi eru 23% einstaklinga í rannsókninni. Flestir eru á stigi II (60%) en á því stigi má einnig búast við að einstaklingur sé farinn að finna fyrir einkennum sjúkdóms. Frekari rannsókna er því þörf bæði meðal einstaklinga með LLT og fjölskyldna þeirra.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="sponsorship" lang="is">B-sjóður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2012-05-08T11:44:17Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2012-05-08T11:44:17Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2012-05-08</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2012-05-07T23:23:03Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2012-02</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/11475</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Hjúkrunarfræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Lungnateppa</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Langvinnir sjúkdómar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Fjölskyldan</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Umönnun</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Áhrif sjúkdóms á einstaklinga með langvinna lungnateppu og fjölskyldur þeirra. Samþætt fræðilegt yfirlit og frumniðurstöður úr þversniðsrannsókn</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Master's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>