<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-27T18:45:07Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/12317" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/12317</identifier><datestamp>2019-08-30T07:53:54Z</datestamp><setSpec>com_1946_6867</setSpec><setSpec>com_1946_6001</setSpec><setSpec>col_1946_34317</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskólinn í Reykjavík</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Örn Brynþór Arnarsson 1989-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Teitur Páll Reynisson 1988-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Þorlákur Helgi Hilmarsson 1983-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Markmið þessarar skýrslu er að auka yfirsýn stjórnanda hjá rekstrarfyrirtæki á rísandi áhættuþáttum sem snúa að rekstri þess. Við uppsetningu skýrslunnar verður stuðst við áhættuúttekt sem byggð er á innra matsferli fjármálafyrirtækja á lágmarks eiginfjárþörf samkvæmt alþjóðlegu Basel II reglunum. Innra matsferli Basel II reglnanna nefnist ICAAP og er tilgangur þess að draga fram helstu áhættur í rekstri, meta umfang þeirra og stærðargráður og meta hvernig hægt er að mæta þessum áhættum án þess að setja rekstrarhæfni fjármálafyrirtækisins í hættu . &#xd;
Miðað við afleiðingar efnahagslægðarinnar, sem Vesturlöndin gengu nýverið í gegnum, telst líklegt að aukin áhersla verði lögð á áhættustýringu innan fyrirtækja. Skýrsla sem þessi getur því talist gagnleg viðbót við áhættustýringu innan rekstrarfyrirtækja.&#xd;
Í eftirfarandi skýrslu var fyrirtækið Marel hf. skoðað, en það rekur uppruna sinn til Háskóla Íslands. Marel er alþjóðlegt fyrirtæki og felst starfsemi þess fyrst og fremst í framleiðslu á verkunarvélum fyrir matvælaiðnað. Rekstrarhorfur fyrirtækisins eru góðar, þar sem ætla má aukinn vöxt á þeim mörkuðum sem fyrirtækið starfar á.&#xd;
Fyrirtækið þarf að huga að fjölda áhættuþátta sem það getur orðið fyrir og má þar nefna markaðsáhættu, útlánaáhættu, rekstraráhættu, lausafjáráhættu, sem og aðrar áhættur. Í skýrslunni voru skoðuð möguleg áhrif ofangreindra áhættuþátta á rekstur fyrirtækisins. &#xd;
Framkvæmdar voru næmnigreiningar, eins og hagnaður í húfi (e. earnings at risk), fjármagnsáætlun með mismiklum efnahagslegum niðursveiflum, álagsprófanir og sviðsmyndagreining. Auk þess var lagt mat á helstu áhættur í rekstri og metnar voru gjaldþrotalíkur fyrirtækisins með líkani Merton og Altman Z-score.&#xd;
Helstu niðurstöður skýrslunnar sýna að rekstur fyrirtækisins er einkar næmur fyrir breytingum á sölu- og kostnaðarverði seldra vara. Að öðru leyti er fyrirtækið vel í stakk búið til þess að mæta öllum áhættuþáttum sem geta myndast miðað við núverandi fjárhags- og peningastöðu, þegar tekið er tillit til notkunar lánalína.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2012-06-26T10:53:29Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2012-06-26T10:53:29Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2012-06-26</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2012-05-18T12:50:16Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2012-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/12317</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Viðskiptafræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Rekstrarhagfræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Áhættugreining</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Úttekt á helstu áhættuþáttum hjá Marel hf.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>