<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-28T03:01:20Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/12439" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/12439</identifier><datestamp>2018-10-12T10:24:16Z</datestamp><setSpec>com_1946_4443</setSpec><setSpec>com_1946_3515</setSpec><setSpec>col_1946_4478</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Landbúnaðarháskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Helgi Elí Hálfdánarson 1989-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Kolfinna Jóhannesdóttir 1967-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Vífill Karlsson 1965-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Miklar breytingar hafa orðið í starfstétt bænda síðustu ár. Búfjáreigendum hefur fækkað og meðalaldur starfandi bænda hækkað. Þessi atriði gefa vísbendingar um að nýliðun í landbúnaði sé lítil. Nægjanleg endurnýjun í bændastétt er mikilvæg til þess að landbúnaður geti þróast og dafnað sem atvinnugrein. Nýliðun skiptir einnig miklu máli fyrir þróun dreifbýlis, viðhald á þjónustu og eflingu atvinnustarfsemi á landsbyggðinni, því ungt fólk er líklegra heldur en eldra fólk, til nýbreytni og þróunar nýrra búskaparhátta. Nýir aðilar sem hug hafa á að hefja búskap mæta ýmsum aðgangshindrunum. Mögulega eru helstu aðgangs-hindranir nýliða inn í nautgriparækt núverandi greiðslumarkskerfi og hátt jarðaverð, en inn í sauðfjárrækt eru það líklega hátt jarðaverð og bág afkoma bænda. &#xd;
Í þessari rannsókn var leitast við að leggja mat á stöðu og þróun nýliðunar á tímabilinu 2001-2009 með gögnum um skráða búfjáreigendur í nautgripa- og sauðfjárrækt. Helstu niðurstöður þessarar rannsóknar eru að nýliðun á tímabilinu 2001-2009 var að meðaltali 5,0% á ári í nautgriparækt en 5,3% á ári í sauðfjárrækt. Fráliðun á tímabilinu 2000-2008 var að meðaltali 9,6% á ári í nautgriparækt en 7,1% á ári í sauðfjárrækt. Skráðum búfjáreigendum í nautgriparækt fækkar úr 1.474 árið 2000 í 959 árið 2009 og skráðum eigendum sauðfjár fækkar úr 2.805 árið 2000 í 2.376 árið 2009. Meðalaldur skráðra búfjáreigenda í nautgriparækt hækkar um 1,6 ár á tímabilinu 2000-2009 en um 2,4 ár í sauðfjárrækt. Töluverður breytileiki kom fram á nýliðun eftir sýslum í báðum búgreinum. Munur á meðalaldri búfjáreigenda milli sýslna var jafnframt greinanlegur.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2012-06-29T11:06:39Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2012-06-29T11:06:39Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2012-06-29</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2012-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/12439</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Landbúnaður</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Búfjáreigendur</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Nýliðun</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Fáliðun</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Meðalaldur</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Markaðsbrestir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Aðgangshindranir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Staða og þróun í nýliðun í nautgripa- og sauðfjárrækt</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>