<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-26T20:03:47Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/12447" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/12447</identifier><datestamp>2018-10-12T10:24:13Z</datestamp><setSpec>com_1946_4443</setSpec><setSpec>com_1946_3515</setSpec><setSpec>col_1946_4478</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Landbúnaðarháskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Snædís Anna Þórhallsdóttir 1987-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Kolfinna Jóhannesdóttir 1967-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Vífill Karlsson 1965-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Eftirspurn eftir kjöti á íslenskum búvörumörkuðum hefur breyst þó nokkuð á síðustu árum og áratugum. Óskir neytenda skipta nú sífellt meira máli og neytendur eru þannig farnir að hafa töluverð áhrif á hvernig bændur haga framleiðslu sinni. Í þessu verkefni er lagt mat á kjötneyslu Íslendinga í dag auk þess sem fjallað er um helstu áhrifaþætti kauphegðunar.&#xd;
Spurningakönnun var lögð fyrir handahófskennt úrtak neytenda og rannsóknin byggir á niðurstöðum hennar. Í ljós kom að kjúklingur er vinsælasta kjöttegundin í dag, sérstaklega meðal þéttbýlisbúa en lambakjötið viðheldur stöðu sinni sem vinsælasta kjötið meðal dreifbýlisbúa. Áhrifaþættir eftirspurnar eru mismikilvægir eftir kjöttegundum, til dæmis þykir neytendum almennt mikilvægara að lambakjöt sé íslenskt að uppruna en að kjúklingur sé það.&#xd;
Góð gæði kjötsins eru þó mikilvægust, sama um hvaða kjöttegund ræðir, að mati neytenda. Nokkuð stór hluti svarenda í könnun verkefnisins segir að væri það í boði myndu þeir frekar kaupa erlent kjöt en íslenskt og nefnir þá helst lægra verð sem ástæðu. Þó er meirihluti sem segist frekar vilja kaupa íslenskt kjöt og er jafnframt tilbúinn að borga hærra verð fyrir það.&#xd;
Afgerandi meirihluti neytenda telur að góður aðbúnaður húsdýra skipti máli við framleiðslu á kjöti og væri tilbúinn að borga hærra verð fyrir kjötvörur sem bæru vottun þess að hafa verið framleiddar við samþykktar aðstæður um aðbúnað og velferð dýra.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2012-06-29T11:30:36Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2012-06-29T11:30:36Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2012-06-29</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2012-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/12447</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Spurningakönnun</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Kjötneysla</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Áhrifaþættir á kauphegðun</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Íslenskt kjöt</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Lífræn ræktun</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Aðbúnaður húsdýra</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Viðhorf íslenskra neytenda til landbúnaðarafurða - Áhrifaþættir á kjötneyslu</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>