<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-27T02:43:26Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/12686" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/12686</identifier><datestamp>2018-10-15T08:52:59Z</datestamp><setSpec>com_1946_2000</setSpec><setSpec>com_1946_1992</setSpec><setSpec>col_1946_2002</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskólinn á Bifröst</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Gunnar Guðbjörnsson 1965-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Jón Ólafsson 1964-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Ástæður þess að ég hóf upphaflega athugun á menningarumfjöllun má rekja til þess að ég hafði, ásamt samstarfsfólki í óperu- og tónlistarstarfsemi, áhyggjur af meintu áhugaleysi fjölmiðla. Breytingar höfðu átt sér stað, ekki síst eftir efnahagshrunið 2008. Burðarbiti í íslenskri menningarumfjöllun, Lesbók Morgunblaðsins, hvarf af sjónarsviðinu og almennt mátti sjá minnkandi menningarumfjöllun og listgagnrýni. Eftir stóð Rás 1 með svipaðar menningaráherslur og fyrir hrun.&#xd;
Eftir að tilraunir til að stofna menningarfjölmiðil á netinu höfðu farið út um þúfur gafst möguleiki á að stofna slíkan miðil sem menningarvefhluta á netmiðlinum pressan.is. Menningarpressan var opin fyrir alla menningarumfjöllun, hvort sem hún var byggð á markaðslegum áherslum eða jaðarmenningu. Eðli móðurmiðilsins reyndist þó fjötur um fót og auglýsendur sneru baki við honum í kjölfar mistaka í efnistökum á Pressunni. Menningarpressan var í höndum rannsakanda í rúmt ár. Mikill áhugi var fyrir umfjölluninni samkvæmt mælingum. Auðveldara virtist að reka slíkt vefsvæði í samstarfi við fréttamiðil með góða dreifingu. Tilraun til að stofna slíkt svæði á mun smærri netmiðli hefur náð til mun færri menningarneytenda. Mælingar sýndu einnig að þótt mikið sé um menningarfréttir og menningarumfjöllun í prentmiðlum rati einungis brot af því á netmiðla sömu fjölmiðlafyrirtækja. Netnotkun er mikil, einkum meðal ungs fólks. Því nær stór hluti menningarumfjöllunar ekki til þess hóps.&#xd;
Nýting netsins er árangursrík leið til að ná til fólks og virðist henta til miðlunar menningarfrétta. Eigi að síður hafa stærstu netmiðlar landsins og RÚV ekki lagt áherslu á nýtingu vefsins til flutnings menningarfrétta í skjóli þess að af því sé ekki markaðslegur ávinningur enda bundið í lögum að auglýsingar skuli ekki birtast á vefnum ruv.is (Lög um Ríkisútvarpið ohf nr. 6/2007 ). Um þriðjungur efnis prentmiðla er menningarumfjöllun og umtalsverður hluti auglýsingatekna er tengdur menningarstarfsemi. Erfitt er því að sjá ástæður þess að þetta skili sér ekki yfir á vefmiðlana.&#xd;
Mælingar benda til mikillar grósku í menningarstarfsemi á Íslandi og almennt til góðrar aðsóknar og menningarneyslu. Eftir hrun virðast Íslendingar í auknum mæli leita á náðir menningarinnar. Í samræmi við það hefur umfjöllun um menningu í fjölmiðlum aukist. Enn er þó menningarumfjöllunin mjög ómarkviss á netmiðlum og í litlum mæli. Svör fólks í menningarstarfsemi við spurningum tengdum menningarumfjöllun sýna að það hefur miklar áhyggjur af gæðum umfjöllunarinnar. Listgagnrýni og upplýsing um menningu almennt virðist hafa hrakað, ekki síst í kjölfar hruns, þó að umfjöllunin virðist vera að færast aftur í fyrra horf hvað magn varðar.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2012-08-01T12:48:35Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2012-08-01T12:48:35Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2012-08-01</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2012-07-31T14:29:12Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2012-06</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/12686</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Félagsvísindi</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Menningarstjórnun</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Fjölmiðlar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Menning</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Listir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Vefmiðlar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Internetið, hrunið og menningarumfjöllun</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="en">The Internet, the financial crash and culture in Icelandic media</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Master's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>