<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-27T16:55:34Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/12956" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/12956</identifier><datestamp>2021-02-10T13:53:23Z</datestamp><setSpec>com_1946_6870</setSpec><setSpec>com_1946_6001</setSpec><setSpec>col_1946_34328</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskólinn í Reykjavík</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Elsa Gunnarsdóttir 1978-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Hlynur Stefánsson 1976-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Ferðaþjónusta á Íslandi er háð umhverfinu og náttúru landsins. Náttúran er ein helsta auðlind landsins og felur í sér sterkt aðdráttarafl fyrir þá erlendu ferðamenn sem vilja heimsækja Ísland. Samkvæmt könnun sem gerð var meðal erlendra ferðamanna á Íslandi sumarið 2011 töldu 56% að það hefði mjög mikil/frekar mikil áhrif á val þeirra á ferðaþjónustufyrirtæki ef það væri með viðurkennda gæðavottun (Ferðamálastofa, 2012). Í dag eru aðeins um 10 ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi með alþjóðlega umhverfisvottun og eru þessi 10 fyrirtæki í mismunandi starfsgreinum innan ferðaþjónustunnar og af ólíkri stærð. Því vakna óneitanlega spurningar um hvers vegna ekki fleiri fyrirtæki hafi sóst eftir umhverfisvottun á sinni starfssemi. Er virði í því að taka upp umhverfisvottun? Skortir mögulega þrýsting frá yfirvöldum á ferðaþjónustuaðila? Vantar einhvern frekari hvata fyrir fyrirtækin? Svo virðist sem lítill þrýstingur sé á fyrirtækin að taka þetta skref þrátt fyrir að umhverfismálefni og umhverfisvottanir hafi verið í umræðunni í ferðaþjónustu um langt skeið. Umhverfisstjórnun skiptir ferðaþjónustu miklu máli upp á að verða sjálfbær atvinnugrein, hún tryggir stöðugar úrbætur í umhverfismálum, jákvæða þróun og góð áhrif á samfélagið í heild sinni.&#xd;
Þegar Hótel Hellnar, lítið hótel á Snæfellsnesi, hlaut Green Globe (í dag Earth Check) umhverfisvottun árið 2002 var það fyrsta ferðaþjónustufyrirtækið á Íslandi til að fá alþjóðlega vottun. Á svipuðum tíma fékk annað lítið hótel út á landi, Hótel Eldhestar, umhverfisvottun Svansins. Hópbílar, meðalstórt rútufyrirtæki á þessum tíma, var eitt af fyrstu fyrirtækjum á Íslandi til að hljóta umhverfisvottun samkvæmt ISO14001 árið 2004. Það er athyglisvert að bæði lítil fyrirtæki og í jafn ólíkri starfsemi séu fyrst fyrirtækja innan ferðaþjónustunnar til að hljóta þessar vottanir, sérstaklega í ljósi þeirrar umræðu að alþjóðlegar vottanir taki mikinn tíma, séu kostnaðarsamar og að þeir staðlar og ferlar sem í þeim felast henti ekki íslenskum ferðaþjónustufyrirtækjum.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2012-09-12T09:36:58Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2012-09-12T09:36:58Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2012-09-12</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2012-06-27T14:10:40Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2012-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/12956</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Umhverfisvernd</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Vottun</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Ferðaþjónusta</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Verkefnastjórnun</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Meistaraprófsritgerðir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Virði alþjóðlegra umhverfisvottana í ferðaþjónustu á Íslandi</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Master's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>