<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-30T00:13:57Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/13124" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/13124</identifier><datestamp>2018-10-15T11:20:06Z</datestamp><setSpec>com_1946_2059</setSpec><setSpec>com_1946_2057</setSpec><setSpec>col_1946_2065</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Hafdís Ingadóttir 1969-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Gylfi Dalmann Aðalsteinsson 1964-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Markmið þessarrar rannsóknar er að kanna hvernig þekkingarstarfsmenn upplifa hið óskrifaða vinnusamband sitt við vinnuveitendur sem innan mannauðsstjórnunar kallast sálfræðilegi samningurinn.  Tilgangur hennar er einnig sá að athuga hvort að breyttar aðstæður á vinnumarkaði í kjölfar efnahagshrunsins árið 2008 hafi haft áhrif á upplifun þekkingarstarfsmanna af sálfræðilega samningnum.  Rannsóknin er byggð á gögnum sem fengin voru með gerð eigindlegrar rannsóknar vorið 2012 þar sem tekin voru hálfopin viðtöl við átta þekkingarstarfsmenn frá jafnmörgum vinnustöðum.  Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru þær að þekkingarstarfsmenn  telja sig mjög sjálfstæða í starfi og að þeir búi við gott starfsöryggi.  Þeir telja sig almennt vera holla vinnuveitendum sínum en hollustan er þó meiri gagnvart eigin sérþekkingu.  Þekkingarstarfsmenn bera mikið traust til vinnuveitenda sinna og telja að það sé gagnkvæmt. Þekkingarstarfsmenn telja traust jafnframt vera mjög mikilvægan þátt í vinnusambandinu. Traust til vinnuveitenda minnkaði þó tímabundið hjá um helmingi viðmælenda í kjölfar efnahagshrunsins en hefur síðan aukist aftur.  Niðurstöður rannsóknarinnar benda einnig til þess að heildarupplifun þekkingarstarfsmanna af sálfræðilega samningnum hafi breyst eftir því hjá hvers konar skipulagsheild þekkingarstarfsmennirnir vinna. Vísbendingar eru um að upplifun þekkingarstarfsmanna  sem vinna hjá skipulagsheildum  þar sem niðurskurður, skipulagsbreytingar eða einhvers konar samdráttur hefur átt sér stað sé í stórum dráttum  neikvæðari en hjá öðrum þekkingarstarfsmönnum. Sex af átta þekkingarstarfsmönnum töldu að þeir myndu hugsanlega íhuga það að flytjast til útlanda ef þeir fengju spennandi starfstilboð en tveir þátttakendur voru nú þegar að skoða starfsmöguleika sína utan landsteinanna.  Niðurstöður rannsóknarinnar undirstrika það að vinnuveitendur þurfa að vera vakandi gagnvart hinu óskrifaða vinnusambandi við þekkingarstarfsmenn ef viðhalda á trausti og hollustu, ekki síst þegar starfsumhverfið einkennist af óvissu og breytingum. &#xd;
 </dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2012-09-20T08:55:57Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2012-09-20T08:55:57Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2012-09-20</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2012-09-19T11:39:55Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2012-10</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/13124</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Viðskiptafræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Mannauðsstjórnun</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Vinnuveitendur</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Starfsfólk</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Þekkingarstjórnun</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Samskipti</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Hið óskráða vinnusamband þekkingarstarfsmanna og vinnuveitenda. Upplifun af sálfræðilega samningnum og áhrif efnahagshruns</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Master's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>