<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-29T01:42:32Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/13245" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/13245</identifier><datestamp>2025-09-03T15:31:05Z</datestamp><setSpec>com_1946_4482</setSpec><setSpec>com_1946_3515</setSpec><setSpec>col_1946_4484</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Landbúnaðarháskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Þórveig Jóhannsdóttir 1987-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Bjarni D. Sigurðsson 1966-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Lárus Heiðarsson 1966-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Verkefnið fjallar um áhrif mismunandi upphafsþéttleika (1000, 2000, 3500 og 5000 tré/ha) á ýmsa þætti sem varða afföll, vöxt, framleiðni, viðar- og trjágæði rússalerkis (Larix sukaczewii, kvæmi Imatra) sem gróðursett var vorið 2002 á fjórum stöðum upp eftir Fljótsdalshéraði (Litla-Steinsvaði í Hróarstungu, Hjartarstöðum í Eiðaþinghá, Mjóanesi í Skógum og Sturluflöt í Fljótsdal). Þessi tilraun var hluti af stærra verkefni sem kallast LTverkefnið.&#xd;
Markmið þessarar tilraunar var að búa til framtíðaraðstöðu til ýmissa skógræktarrannsókna með gróðursetningu stórra samfelldra rannsóknareita (0,5 ha) með mismunandi upphafsþéttleika lerkis á hverjum stað. Úttekt á rannsóknarreitum fór fram í ágúst 2011, þ.e. níu árum eftir gróðursetningu. Mældir voru þrír mælifletir innan hvers upphafsþéttleika á hverjum stað, alls 48 mælifletir.&#xd;
Eftirfarandi mælibreytur voru teknar út fyrir öll lifandi tré á flötunum: hæð, toppvöxtur, bolþvermál, þvermál sverustu greinar (mat á kvistum), sjáanlegt toppkal, auk einkunnar á&#xd;
bolgæðum og beitarskemmdum. Bolsýni voru tekin til ákvörðunar á viðarþéttleika í rannsóknastofu. Útreiknaðar breytur voru þéttleiki, hlutfall aukastofna, grunnflötur, afföll,&#xd;
standandi viðarrúmmál (m3/ha bolviðar) og meðalvaxtarhraði (m3/ha á ári).&#xd;
Helstu niðurstöður þessar verkefnis voru að upphafsþéttleiki hafði marktæk áhrif á yfirhæðarvöxt, standandi viðarrúmmál, meðalvaxtarhraða skógar og beitarskemmdir. Ekki reyndist vera marktækur munur á milli upphafsþéttleikaliða fyrir þvermálsvöxt á hvert tré, á viðarþéttleika trjánna og bolgæðum.&#xd;
Oftast var meiri munur á milli tilraunastaða en á milli mismunandi upphafsþéttleika á hverjum stað. Almennt var mestur vöxtur í Mjóanesi og Hjartarstöðum, en minni á Sturluflöt og Litla-Steinsvaði. Mikill munur var á milli Hjartarstaða og Litla-Steinsvaðs, en báðar jarðirnar eru utarlega á Héraði. Þetta sýnir vel að nærskilyrði á hverjum stað skipta höfuðmáli fyrir vöxt&#xd;
lerkis og því er varasamt að fullyrða um slík skilyrði fyrir stór samfelld landssvæði.&#xd;
Niðurstöðurnar gilda einungis fyrir upphafstig skógræktar. Því er ekki enn tímabært að segja til um hver lokaáhrif mismunandi upphafþéttleika verða á vöxt, framleiðni og trjágæði&#xd;
skógarins. Þessi rannsókn er því fyrsta skrefið í slíku mati og spennandi verður að fylgjast áfram með tilrauninni.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2012-10-04T14:01:30Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2012-10-04T14:01:30Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2012-10-04</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2012-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/13245</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Skógrækt</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Fljótsdalshérað</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Viðarþéttleiki</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Gróðurskemmdir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Beitarskemmdir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Áhrif upphafsþéttleika lerkis á viðarvöxt og trjágæði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>