<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-10-01T17:13:09Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/13249" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/13249</identifier><datestamp>2025-09-03T15:31:35Z</datestamp><setSpec>com_1946_4482</setSpec><setSpec>com_1946_3515</setSpec><setSpec>col_1946_4483</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Landbúnaðarháskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Sunna Áskelsdóttir 1979-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Þorsteinn Guðmundsson 1948-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Bjarni D. Sigurðsson 1966-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Breytingar á kolefnismagni jarðvegs í fjórum langtíma áburðatilraunum: vöktun og spár hermilíkana.&#xd;
Landsvæði nýtt undir landbúnað og graslendi ná yfir stór svæði í heiminum. Kolefnisforði þessara svæða er að mestu að finna í jarðveginum. Landnýting hefur mikil áhrif á kolefnisforða jarðvegs. Almennt er kolefnismagn jarðvegs hærra í graslendi og skóglendi en þar sem stunduð er akuryrkja þó að það fari mikið eftir jarðvegsgerð og öðrum umhverfisaðstæðum.&#xd;
Í þessari rannsókn voru breytingar á kolefni jarðvegs og öðrum tengdum þáttum skoðaðar í fjórum áburðartilraunum sem stóðu yfir in nokkra áratugi. Gögn frá tilraununum voru einnig notuð til þess að prófa hermilíkan RothC-23.6 og RothC-Volc, sérstaka útgáfu aðlagaða að eldfjallajarðvegi, við íslenskar aðstæður. Tvær nálganir voru notaðar til að áætla lífrænt efni sem bærist í jarðveginn: Annarsvegar reiknað út frá mældri uppskeru og hinnsvegar gildi sem hermilíkanið sjálft áætlaði út frá jarðvegs og umhverfisþáttum á hverjum stað.&#xd;
Tilraunirnar voru á Sámsstöðum í Fljótshlíð og Akureyri þar sem jarðvegurinn var Silandic Andosol (Brown Andosol). Á Geitasandi þar sem tilraunin hafði verið lögð á líttgróna sendna jörð 1958 og jarðvegurinn var skilgreindur sem Vitric Andosol (Vitrsol) og Skriðuklaustri þar sem jarðvegurinn var skilgreindur sem Gleyic Andosol. Á tilraunirnar hafði frá upphafi verið borinn á tilbúinn áburður, fosfór og kalí og vaxandi skammtur af nitri. Tveir tilraunaliðir á hverjum stað voru skoðaðir, liðir með lægsta nitur skammtinn og reitir þar sem mikið nitur hafði verið borið á.&#xd;
Kolefnismagn jarðvegs var mest í tilraununum á Sámsstöðum og á Akureyri og lang minnst á Geitasandi. Litlar breytingar höfðu orðið á kolefnismagni jarðvegs í öllum tilraununum nema á Geitasand þar sem mikið kolefni hafði safnast upp og á Sámsstöðum þar sem mikið nitur hafði verið borið á og nokkur uppsöfnun hafði átt sér stað. Á Akureyri virtist smávæginleg uppsöfnun hafa átt sér stað hún var ekki marktæk. Á Skriðiklaustri var breytingin einnig minniháttar, kolefnismagn minnkaði þar sem ekkert nitur var borið á og jókst þar sem mikið niturvar borið á.&#xd;
Ál og járn leyst í pýrófosfat lausn sem og leirmagn jarðvegs hafði sterka jákvæða fylgni við kolefni í jarðvegi í tilraununum fjórum. Áborið nitur hafði líka marktæk áhrif á kolefnismagn jarðvegs í tilraununum.&#xd;
Spár hermilíkananna um kolefnismagn jarðvegs við enda tilrauna tímabilsins voru í öllum tilvikum nema einu lægri en mælingar. Spár módelanna voru bestar þar sem lítil breyting hafði orðið á kolefnismagni jarðvegs og lakastar þar sem mesta breytingin hafði orðið (Geitasandi). RothC-Volc reyndist betur en RothC-23.6 en aðferð við að áætla magn lífræns efnis sem barst í jarðveginn hafði meiri áhrif á spágetu hermilíkananna. Ef til frekari notkunar á hermilíkönum til að spá fyrir um breytingar á kolefnismagni í Íslenskum jarðvegi er þörf á ítarlegri upplýsingum um lífrænt efni sem berst til jarðvegs, eiginleika þess og umsetningu.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2012-10-04T14:14:42Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2012-10-04T14:14:42Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2012-10-04</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2012-04</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/13249</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="en">Changes in soil organic carbon in four long-term hayfield fertilisation experiments in Iceland:</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Master's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>