<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-26T12:54:27Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/13292" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/13292</identifier><datestamp>2018-10-12T10:18:29Z</datestamp><setSpec>com_1946_10520</setSpec><setSpec>com_1946_10473</setSpec><setSpec>com_1946_4443</setSpec><setSpec>com_1946_3515</setSpec><setSpec>col_1946_10525</setSpec><setSpec>col_1946_4478</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskólinn á Hólum</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Landbúnaðarháskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Eydís Ósk Indriðadóttir 1982-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Elsa Albertsdóttir 1975-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Þorvaldur Kristjánsson 1977-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Sveinn Ragnarsson 1969-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" lang="other">Útskrift frá:&#xd;
Háskólanum á Hólum - Hestafræðideild&#xd;
Landbúnaðarháskóla Íslands - Auðlindadeild</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Markmið þessa verkefnis var að skoða dóma fyrir og eftir yfirlitssýningar á íslenskum&#xd;
kynbótahrossum. Meðaltalshækkun og tíðni breytinga á einkunnum á yfirlitssýningum var&#xd;
tekin saman, fyrir alls 7187 kynbótadóma á árunum 2007-2011. Gerð var samantekt á því&#xd;
hvaða gangtegundir var verið að sýna og tíðni og magn breytinga á einkunnum fyrir hvern&#xd;
hæfileika. Auk þess var skoðuð tíðni áverka á nokkrum kynbótasýningum þar sem tekinn var&#xd;
saman fjöldi áverka í dómi fyrir og eftir yfirlit, alls á 2064 hrossum. Að lokum var markmiðið&#xd;
að meta erfðastuðla allra hæfileika og nota til þess einkunnir bæði fyrir og eftir yfirlit.&#xd;
Meðalhækkun í einkunnagjöf allra eiginleika var 0,80 þar sem mesta meðalhækkunin var í&#xd;
hægu tölti, hægu stökki, feti og skeiði. Oftast hækkuðu eiginleikar um 0,5 í einkunnagjöf á&#xd;
yfirlitssýningu og nokkuð var um hækkun upp á 1,0. Mestur breytileiki í hækkunum var í&#xd;
skeiði og var það eini eiginleikinn sem hækkaði um heila fjóra í einkunnagjöf. Annars var&#xd;
mikill breytileiki í stökki og hægu tölti. Minnsti breytileikinn í hækkunum var hjá tölti, vilja&#xd;
og geðslagi og fegurð í reið.&#xd;
Alls voru skráðir áverkar hjá 415 hrossum á tilteknum kynbótasýningum þar sem 215 áverkar&#xd;
voru skráðir á yfirliti en 262 áverkar skráðir í dómi fyrir yfirlit.&#xd;
Erfðastuðlar voru metnir með tveimur mismunandi líkönum: þar sem gögnin innihéldu alla&#xd;
dóma þeirra hrossa sem metin voru á kynbótasýningum á gefnu tímabili og þar sem gögnin&#xd;
innihéldu aðeins hæsta aldursleiðrétta kynbótadóm hross ef hross var metið oftar en einu sinni&#xd;
á kynbótasýningu á gefnu tímabili. Þá var eiginleikinn skeið metinn bæði með öllum dómum&#xd;
inniföldum og síðan án færslna þar sem skeið var 5,0 (einungis voru notaðar einkunnir fyrir&#xd;
skeið ≥ 5,5). Þetta var gert í því skyni að kanna hugsanlegan mismun erfðastuðla.&#xd;
Helstu niðurstöður á mati erfðastuðla voru þær að ef dómar eftir yfirlit eru notaðir þá næst&#xd;
almennt nákvæmara mat á hestum, hvort sem um er að ræða alla dóma eða hæstu&#xd;
aldursleiðréttu dóma. Nákvæmara mat skilar sér m.a í hækkun arfgengis sambærilegra&#xd;
eiginleika ef notaðir voru dómar eftir yfirlit samanborið við ef notaðir voru einungis dómar&#xd;
fyrir yfirlit. Hækkun arfgengis má nær alltaf rekja til minni umhverfisbreytileika eftir yfirlit&#xd;
en fyrir yfirlit auk þess sem mat á erfðabreytileika verður hærra í sumum eiginleikum.&#xd;
Þegar notaður var hæsti aldursleiðrétti dómur hækkaði mat á arfgengi allra eiginleika eftir&#xd;
yfirlitssýningar nema hjá fegurð í reið sem var óbreytt. Mesta hækkun á arfgengi var hjá&#xd;
eiginleikunum hægu tölti og skeiði.&#xd;
Þegar notaðar voru endurteknar mælingar hækkaði arfgengi allra eiginleika, mest fyrir hægt&#xd;
tölt. Í flestum eiginleikum var hækkun í arfgengi meiri þegar endurteknar mælingar voru&#xd;
notaðar samanborið við þegar aðeins hæsti aldursleiðrétti dómur var notaður. Almennt var&#xd;
lítil breyting í mati á erfðabreytileika en lækkun var í mati á umhverfisbreytileika allra&#xd;
eiginleika, nema fegurð í reið þar sem hann stóð í stað.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2012-10-16T09:49:48Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2012-10-16T09:49:48Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2012-10-16</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2012-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/13292</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Kynbótasýningar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Yfirlitssýning</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Tíðni breytinga</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Áverkaskráning</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Mat á erfðastuðlum</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Yfirlitssýningar á kynbótahrossum - tíðni einkunnabreytinga og mat á erfðastuðlum</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>