<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-28T09:17:16Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/13293" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/13293</identifier><datestamp>2018-10-12T10:24:16Z</datestamp><setSpec>com_1946_4443</setSpec><setSpec>com_1946_3515</setSpec><setSpec>col_1946_4478</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Landbúnaðarháskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Heiðrún Sigurðardóttir 1981-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Elsa Albertsdóttir 1975-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Í ræktunarmarkmiði íslenskra hrossa er lögð áhersla á ræktun sterkbyggðra, viljugra&#xd;
og geðgóðra alhliðahrossa sem henta bæði börnum og fullorðnum jafnt í keppni sem&#xd;
frístundaiðju. Úrvalsmarkið er nánar skilgreint sem eiginleikar dómstigans sem&#xd;
dæmdir eru á kynbótasýningum. Í dag eru metin 17 atriði; átta atriði tilheyra&#xd;
sköpulagi (höfuð; háls, herðar og bógar; bak og lend; samræmi; fótagerð; réttleiki;&#xd;
hófar og prúðleiki) og níu tilheyra hæfileikum (hægt tölt; tölt; brokk; skeið; hægt&#xd;
stökk; stökk; vilji og geðslag; fegurð í reið og fet). Hver eiginleiki hefur sinn&#xd;
vægistuðul sem er eins konar hagfræðilegur mælikvarði á verðmæti eða mikilvægi&#xd;
hans. Við úrval íslenskra kynbótahrossa er notast við kynbótaeinkunn sem byggir á&#xd;
kynbótadómum og uppröðun hrossa miðast við kynbótagildi heildareinkunnar&#xd;
sköpulags og hæfileika. BLUP (e. best linear unbiased prediction) aðferðin er notuð&#xd;
við útreikninga á kynbótamatinu og niðurstöður útreikninga eru aðgengilegar&#xd;
almenningi inn á vefsíðunni www.worldfengur.com.&#xd;
Úrvalsstig íslenskra stóðhesta eru þrjú: fyrsta stigið er ákvörðunin um hvort ungfoli&#xd;
verði geltur eða ekki, annað stigið er eftir einstaklingsdóm stóðhestsins og þriðja er&#xd;
eftir einstaklingsdóm 15-30 afkvæma. Hryssur eru valdar eftir ætterni og/eða&#xd;
einstaklingsdóm. Úrval er forsenda kynbótastarfs og erfðaframfara og&#xd;
úrvalsstyrkleikinn er í raun beinn mælikvarði á virkni kynbótastarfsins. Markmið&#xd;
verkefnisins var að kanna úrvalsstyrkleika og erfðaframfarir á árunum 1990-2010 í&#xd;
þeim eiginleikum íslenska hestsins sem skilgreina ræktunarmarkmiðið og meta hversu&#xd;
vel ræktendur fylgja í raun hinu opinbera ræktunarmarkmiði. Ættliðabil&#xd;
kynbótahrossa á tímabilinu var einnig kannað. Þessi atriði hafa áður verið könnuð en&#xd;
lítið hefur þó verið birt opinberlega um niðurstöður. Við úrvinnslu rannsóknarinnar&#xd;
var notað kynbótamat hrossa fæddum á Íslandi á tímabilinu 1990-2010, alls 237251&#xd;
einstaklingar. Forrit frá Þorvaldi Árnasyni voru notuð til útreikninga á&#xd;
erfðaframförum, úrvalsstyrkleika og ættliðabili.&#xd;
Ættliðabil stóðhesta í íslenska hrossastofninum er að meðaltali 7,6 ár og hryssna 12,4&#xd;
ár. Ættliðabil hryssna hefur lengst á tímabilinu en ættliðabil stóðhesta hefur styst.&#xd;
Úrvalsstyrkleiki heildareinkunnar sköpulags og hæfileika hefur aukist um 5% í&#xd;
feðraliðum á tímabilinu og tvöfaldast í mæðraliðum. Úrvalsstyrkleikinn er þó margfalt&#xd;
meiri hjá stóðhestum en hjá hryssum í öllum metnum eiginleikum nema feti&#xd;
(úrvalsstyrkleiki heildareinkunnar er 12,5 stig að meðaltali hjá stóðhestum en 2,7 stig&#xd;
hjá hryssum). Staðlaður úrvalsstyrkleiki sýnir fram á afturför í hlutfalli valinna&#xd;
foreldra frá því um aldamótin. Hlutfall valinna stóðhesta fyrir heildareinkunn hefur&#xd;
hækkað úr 5% í 20% á síðustu 10 árum og hlutfall valinna hryssna fyrir sama&#xd;
eiginleika hefur hækkað úr 65% í 80% á sama tíma.&#xd;
Ljóst er á niðurstöðum að í flestum tilvikum hefur vægi eiginleikanna mikið um það&#xd;
að segja hversu stíft er valið fyrir þeim (valið stífast fyrir hálsi, herðum og bógum;&#xd;
samræmi; tölti; fegurð í reið; vilja og geðslagi) og því má álykta að ræktendur séu í&#xd;
grunninn að fylgja ræktunarmarkmiðinu.&#xd;
Árlegar erfðaframfarir eru í samræmi við úrvalsstyrkleika hvers eiginleika, þ.e. mestar&#xd;
erfðaframfarir eru þar sem úrvalsstyrkleikinn er mestur. Erfðaframfarirnar í&#xd;
heildareinkunn sköpulags og hæfileika eru um 1,1 staðalfrávik staðlaðrar&#xd;
kynbótaeinkunnar síðustu tvo áratugina. Erfðaframfarirnar eru að mestu leyti&#xd;
tilkomnar vegna úrvals stóðhesta. Brýna þarf fyrir ræktendum að framkvæma stífara&#xd;
úrval gagnvart hryssum. Vaxandi hlutfall sýndra hryssna gefur tilefni til stífara úrvals&#xd;
sem myndi leiða til aukinna erfðaframfara. Afturför í valhlutfalli gefur einnig rými til&#xd;
stífara úrvals, sérstaklega hvað varðar stóðhestana. Við úrval þarf þó alltaf að taka&#xd;
mið af erfðabreytileikanum og passa að hann tapist ekki úr stofninum og huga að&#xd;
stærð virkrar stofnstærðar. Nauðsynlegt er að viðhalda skynsamlegum fjölda&#xd;
kynbótagripa. Einnig þarf að fylgjast með þróun ættliðabils stóðhesta með tilliti til&#xd;
öryggi úrvalsins og fræða ræktendur um mikilvægi þess að skipta eldri&#xd;
ræktunarhryssum fyrr út fyrir yngri hryssur með hærra kynbótamat til að stytta&#xd;
ættliðabil hryssna og auka erfðaframfarir.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2012-10-16T09:53:25Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2012-10-16T09:53:25Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2012-10-16</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2012-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/13293</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Hestar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Íslensk hrossarækt</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Kynbótamat</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Erfðaframfarir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Úrvalsstyrkleiki</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Ættliðabil</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Athugun á úrvalsstyrkleika og erfðaframförum í einstökum eiginleikum í íslenskri hrossarækt</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>