<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-25T14:03:16Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/13298" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/13298</identifier><datestamp>2018-10-12T10:18:29Z</datestamp><setSpec>com_1946_10520</setSpec><setSpec>com_1946_10473</setSpec><setSpec>com_1946_4443</setSpec><setSpec>com_1946_3515</setSpec><setSpec>col_1946_10525</setSpec><setSpec>col_1946_4478</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Landbúnaðarháskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskólinn á Hólum</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Ragnhildur Anna Ragnarsdóttir 1986-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Guðrún Jóhanna Stefánsdóttir 1967-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" lang="other">Útskrift frá:&#xd;
Háskólanum á Hólum - Hestafræðideild&#xd;
Landbúnaðarháskóla Íslands - Auðlindadeild</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Síðustu ár hefur færst í vöxt á Íslandi að nota hlaupabretti (hlaupabretti án vatns og vatnsbretti) við þjálfun hesta og þá sérstaklega afkastamikilla hesta. Hins vegar er lítið vitað um áhrif þjálfunarinnar á íslenska hestinn en engar rannsóknir þess efnis hafa verið birtar sérstaklega fyrir hann.&#xd;
Markmið verkefnisins var að kanna hvernig hestaþjálfarar á Íslandi sem hafa aðgang að hlaupabretti nýta það við þjálfun sína og hvaða þekking liggur þar að baki. Einnig að meta það líkamlega álag sem er á hestunum við slíka þjálfun.&#xd;
Gagnasöfnun fór þannig fram að heimsóttar voru sex tamninga- og þjálfunarstöðvar á Íslandi sem eiga og nota hlaupabretti fyrir hesta. Þar voru gerðar mælingar á líkamlegu álagi á 23 íslenskum hestum á aldrinum 4-17 vetra við þjálfun á hlaupabretti. Á meðan hver hestur var þjálfaður á hlaupabrettinu var hjartsláttartíðni hans mæld, auk þess sem hún var mæld í fimm mínútur eftir að þjálfun lauk, til að fylgjast með hvernig og hversu fljótt hesturinn jafnaði sig eftir þjálfunina. Öndunartíðni hvers hests var talin fyrir og eftir þjálfun hans á brettinu, ásamt því að líkamshiti hvers hests var mældur fyrir og eftir þjálfun hans á brettinu. Spurningalisti var lagður fyrir eiganda/þjálfara tamninga- og þjálfunarstöðvarinnar við komuna á staðinn, sem hann svaraði meðan á heimsókn stóð.&#xd;
Niðurstöður benda til að ekki sé mikið álag á hestum við þjálfun á hlaupabretti hérlendis.&#xd;
Þá virðast þjálfarar ekki vera að nýta brettin til fulls við þjálfun vegna skorts á vitneskju um hvaða áhrif það muni hafa á hestinn. Við þjálfun á brettinu leggja þjálfarar megináherslu á að hesturinn beiti sér rétt í stað þess að hann fari á sem mestan hraða.&#xd;
Brýnt er vegna vaxandi notkunar á hlaupabrettum við þjálfun að áhrif þeirra á íslenska hestinn verði rannsökuð. Til að þjálfarar geti notað brettið sem markvissast þurfa þeir á meiri vitneskju að halda.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2012-10-16T10:42:28Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2012-10-16T10:42:28Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2012-10-16</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2012-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/13298</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Íslenski hesturinn</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Hlaupabretti</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Vatnsbretti</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Líkamlegt álag</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Hjartsláttur</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Öndunartíðni</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Líkamshitastig</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Könnun á notkun hlaupabretta fyrir hesta á Íslandi</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>