<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-26T16:17:45Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/13469" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/13469</identifier><datestamp>2018-10-15T09:32:35Z</datestamp><setSpec>com_1946_2007</setSpec><setSpec>com_1946_1992</setSpec><setSpec>col_1946_2008</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskólinn á Bifröst</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Vigdís Björk Segatta 1986-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Gísli Steinar Ingólfsson 1976-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Þessi ritgerð fjallar á heildstæðan hátt um áhrifaríkar leiðir sem gera íslenskum þjónustufyrirtækjum kleift að auka ánægju, tryggð og arðsemi viðskiptavina sinna.&#xd;
Ritgerðin hefst á fræðilegri umfjöllun, þar sem lykilhugtök eins og ánægja og tryggð eru tekin fyrir ásamt þeirri grunnþjónustu sem þarf að vera til staðar í fyrirtækjum. Næst tekur&#xd;
við viðskiptavinamiðuð þjónustustefna. Fjallað er um þætti sem þurfa að vera til staðar í slíkri stefnu. Þeir eru meðal annars upplifun viðskiptavina á gæðum þjónustu og mælingar&#xd;
ásamt ábendinga- og kvörtunarkerfi. Fjallað er um starfsmannahald innan fyrirtækja, farið er yfir árangursmat, viðskiptavinamiðað umbunarkerfi og vinnustaðagreiningar.&#xd;
Virðiskeðja þjónustu tekur saman þá þætti sem skipta máli í viðskiptavinamiðaðri stefnu og sýna hvernig þeir skila sér í veltuaukningu og hagnaði fyrirtækja. Einnig er fjallað um&#xd;
mikilvægi þess að fyrirtæki geri greinarmun á slæmum og góðum hagnaði og átti sig á því hvernig mögulegt er að forðast þann fyrrnefnda. Næsti kafli ritgerðarinnar fjallar um&#xd;
áhrifaríkar leiðir sem fela í sér innleiðingu á kerfum þar sem stjórnendur fyrirtækja og allir starfsmenn taka virkan þátt. Þessar leiðir hafa sama markmiðið, að auka ánægju,&#xd;
tryggð og arðsemi viðskiptavina. „Customer Relationship Management“ (CRM) kemur fyrst fyrir. Í ljósi þess hve margir íslenskir stjórnendur þekkja CRM og hve mörg fyrirtæki&#xd;
notast nú þegar við kerfið er ekki fjallað ítarlega um innleiðingarferli CRM. Fjallað er stuttlega um mismunandi þætti sem fyrirtæki geta lagt áherslu á innan kerfisins en&#xd;
umfjöllunin snýst aðallega um hvernig nota skuli CRM á réttan hátt. „Customer Value Management“ (CVM) kemur þar á eftir. Umfjöllunin um CVM tekur meðal annars til þeirra tíu skrefa sem fyrirtæki þurfa að fara í gegnum við innleiðingu kerfisins, ásamt&#xd;
margvíslegum mælingum sem felast í því. „Net Promoter Score“ (NPS) og „Customer effort Score“ (CES) koma síðust. Svipuð aðferðafræði einkennir síðastnefndu kerfin, en þau fela í sér mælingu í gegnum einstaka spurningar sem rannsóknir hafa sýnt fram á að endurspegli ánægju og tryggð viðskiptavina. Jafnframt er fjallað um þá þætti sem innleiðing þeirra felur í sér. Tæpt er á kostum og göllum hvers kerfis, ásamt því hvort þau&#xd;
fyrirtæki sem tekin voru viðtöl við notist við kerfin og fjallað um hvernig fyrirtæki geta fullkomnað þjónustu sína með því að átta sig á hegðun viðskiptavina sinna. Að lokum er&#xd;
kafli með umræðum og ályktunum. Þar er rannsóknarspurningum ritgerðarinnar er svarað. Fjallað er um hvernig efni ritgerðarinnar nýtist í íslensku atvinnulífi og gefin eru dæmi&#xd;
um hvaða kerfi henta mismunandi stærð fyrirtækja. Einnig eru birtar helstu niðurstöður úr viðtölum ásamt frekari hugleiðingum um efnið.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2012-11-27T10:41:00Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2012-11-27T10:41:00Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2012-11-27</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2012-11-26T11:50:07Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2012-09</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/13469</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Viðskiptafræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Markaðsfræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Þjónustufyrirtæki</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Viðskiptavinir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Áhrifaríkar leiðir fyrir íslensk þjónustufyrirtæki til þess að auka ánægju, tryggð og arðsemi viðskiptavina í nútíma fyrirtækjaumhverfi</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="en">Effective means for Icelandic service companies to increase customer satisfaction, loyalty and profitability in a modern business environment</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>