<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-27T03:23:53Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/14119" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/14119</identifier><datestamp>2018-10-15T09:34:13Z</datestamp><setSpec>com_1946_2007</setSpec><setSpec>com_1946_1992</setSpec><setSpec>col_1946_2009</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskólinn á Bifröst</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Unnur Ágústsdóttir 1955-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Lilja Mósesdóttir 1961-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Viðfangsefni rannsóknar þessarar eru sjúkratryggingar á Íslandi, þ.e.a.s. sá hluti sem snýr að einstaklingum með beinum greiðslum í veikindaorlofi. Eða m.ö.o. rannsókn á því hvaða fjármuni íslenskir launþegar fá í hendurnar til að tryggja afkomu sína verði þeir fyrir því að veikjast alvarlega. Niðurstöður eru&#xd;
bornar saman við fjögur önnur lönd, eitt úr hverjum flokki Esping-Andersenmiðað við flokkun hans á velferðarkerfum, og eitt sem dæmi um blandað kerfi.&#xd;
Löndin sem fyrir valinu urðu eru: Bretland (frjálslynda kerfið), Þýskaland (íhaldssama kerfið), Danmörk (félagslega kerfið) og Noregur (blandað kerfi). Markmiðin með rannsókninni eru að greina íslenska sjúkratryggingakerfið út frá þessum greiðslum, skoða hvernig verkaskiptingu íslenska velferðarkerfisins&#xd;
er háttað varðandi þær, skoða kerfið út frá greiningu Esping-Andersen á einkennum velferðarkerfa og að framkvæma samanburð á íslenska kerfinu og kerfum í samanburðarlöndunum fjórum.&#xd;
Skoðaðir voru kjarasamningar, reglugerðir og úthlutunarreglur sex stéttarfélaga og sjúkrasjóða og réttindi samkvæmt þeim borin saman. Þau félög sem fyrir valinu urðu eru: VR, SFR, Efling, Kennarasamband Íslands, Verslunarmannafélag Skagafjarðar (VS) og Eining-Iðja. SFR og VR lögðu síðan til raunupplýsingar&#xd;
til að hægt væri að kafa dýpra og skoða raunverulegar greiðslur.&#xd;
Einnig var gerð viðhorfskönnun meðal félagsmanna SFR og VR í þeim tilgangi að kanna þekkingu launþega á réttindum sínum í veikindum og meta hvort þessi réttindi skipti máli varðandi stéttarfélagsaðild.&#xd;
Helstu niðurstöður eru þær að sé íslenska sjúkradagpeningakerfið skoðað út frá flokkun Esping-Andersen á velferðarkerfum í íhaldssöm, frjálslynd og félagsleg kerfi, flokkast það sem blandað kerfi og fellur á milli félagslega klasans&#xd;
og þess íhaldssama. Ástæður eru þær helstar að kerfið er afar atvinnutengt, réttindi eru áunnin og fylgja stéttarfélagsaðild. Í ljósi þessa verður að telja að sá hluti íslenska velferðarkerfisins sem hér er til skoðunar, þ.e. sjúkradagpeningakerfið,sé ekki til þess fallinn að ýta undir af-vöruvæðingu íslenskra launþega. Félagsleg réttindi innan kerfisins eru hverfandi og lagskipting mikil.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2013-03-07T09:46:57Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2013-03-07T09:46:57Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2013-03-07</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2006-06</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/14119</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Viðskiptafræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Sjúkratryggingar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Veikindaréttur</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Velferðarkerfi</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Velferð í veikindum : réttindi vinnandi fólks í alþjóðlegu samhengi</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Master's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>