<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-27T09:07:47Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/1442" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/1442</identifier><datestamp>2018-10-15T14:33:15Z</datestamp><setSpec>com_1946_130</setSpec><setSpec>com_1946_2057</setSpec><setSpec>col_1946_132</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author" lang="is">Nína Dóra Óskarsdóttir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author" lang="is">Ragnheiður Magnúsdóttir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author" lang="is">Sara Sigurðardóttir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor" lang="*">Kristján Þór Magnússon 1979-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor" lang="*">Kristín Þorleifsdóttir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Markmið rannsóknarinnar er að kanna hvort tengsl séu á milli ástands skólalóða og hreyfingar barna í frímínútum. Jafnframt að kanna hvort börn sem eru líkamlega virkari í frímínútum séu einnig virkari eftir skóla og um helgar, hvort tengsl séu á milli líkamsþyngdarstuðuls og hreyfingar, hvort samband sé milli hreyfingar í frímínútum og þess að finnast skemmtilegt í frímínútum og hvort munur sé á hreyfingu milli kynja. Þátttakendur voru 98 börn, 47 stelpur og 51 strákur, í fjórða bekk í tveimur grunnskólum í Reykjavík. Lagður var fyrir spurningalisti um líðan barnanna í skólanum, hreyfingu og íþróttaiðkun í og utan skóla og sjálfstætt mat barnanna á skólalóðinni. Notast var við hreyfimæla sem börnin voru með um mittið í viku en þeir mældu ákefð hreyfingar barnanna. Hæð og þyngd var mæld til að finna út líkamsþyngdarstuðul. Vettvangskönnun var gerð til að sjá hvað börnin voru að gera og hvar á lóðinni þau léku sér í lengstu frímínútum dagsins. Helstu niðurstöður voru að ekki fannst marktækur munur á hreyfingu barna á milli skólanna. Þó svo að ekki hafi verið um tölfræðilega marktækan mun á hreyfingu að ræða er hugsanlegt að börnin séu engu að síður virkari í skólanum með betur útbúinni lóð vegna þess að meðaltalstölur hreyfimælanna voru hærri hjá þeim. Niðurstaðan úr vettvangskönnuninni var sú að börnin á verr útbúinni lóð virtust vera minna í leikjum en börnin á betur útbúinni lóð. Þar sem munur var á leiknum bendir það til þess að tengsl séu á milli hreyfingar í frímínútum og ástands skólalóða. Þau börn sem hreyfðu sig meira í frímínútum hreyfðu sig einnig meira eftir skóla og um helgar sem segir að þau börn sem eru virkari í daglegum störfum eru einnig virkari á skólatíma. Ekki var fylgni á milli hreyfingar og þess að finnast skemmtilegt í frímínútum og því virðist að þeir sem eru virkir og óvirkir finnist jafn skemmtilegt í frímínútum. Strákar hreyfðu sig marktækt meira en stelpur í frímínútum, eftir skóla og um helgar.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned" lang="is">2007-12-13T14:29:06Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available" lang="is">2007-12-13T14:29:06Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued" lang="is">2007-12-13T14:29:06Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri" lang="is">http://hdl.handle.net/1946/1442</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso" lang="is">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Hreyfing</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Börn</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Skólalóðir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Frímínútur</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Hreyfing barna í skólanum : rannsókn á tengslum milli ástands skólalóðar og hreyfingar barna í frímínútum</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" lang="is">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>